Ásmundur Þorleifsson, Horni

Úr Slttuhreppur
(Endurbeint frá Ásmundur Þorleifsson)
Jump to navigation Jump to search

Ásmundur Þorleifsson. Hann var bóndi á Horni 1788-89, líklega aðfluttur, ef til vill sonur Þorleifs Guðmundssonar bónda á Hálsi á Ingjaldssandi.

Ásmundur var kominn í Þverdal 1784. Kona hans var Hildur Guðmundsdóttir. Dóttir þeirra var Helga Ásmundsdóttir, kona Páls Sigurðssonar á Horni. Hildur átti síðar Einar Einarsson yngri í Þverdal.

Ásmundur fluttist frá Horni í Kjaransvík 1789 og bjó þar til 1792-93. Þar mun hann hafa látizt, ekki gamall maður.