Munur á milli breytinga „Sölvi Guðmundur Sigurgeir Betúelsson, Hesteyri“

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search
 
Lína 10: Lína 10:
 
<noinclude>
 
<noinclude>
  
[[Category:Fólk í Sléttuhreppi]][[Category:Hreppstjórar í Sléttuhreppi]]
+
[[Category:Fólk í Sléttuhreppi]][[Category:Hreppstjórar í Sléttuhreppi]][[Category:Oddvitar í Sléttuhreppi]]
 
</noinclude>
 
</noinclude>

Núverandi breyting frá og með 12. júlí 2026 kl. 00:32

Sölvi Guðmundur Sigurgeir Betúelsson. Fæddur 30. janúar 1893

Foreldrar: Betúel Betúelsson þá verzlunarmaður á Hesteyri, síðar bóndi og verslunarstjóri í Höfn og kona hans Anna Jóna Guðmundsdóttir.

Kona: 25. október 1938, Sigrún, fædd 22. september 1905, Bjarnadóttir, Dósóþeussonar á Látrum. Hún ólst upp á Hesteyri hjá Guðbjari Guðmundssyni og konu hans. Barnlaus.

Sölvi var lengi formaður á útvegi föður síns í Höfn. Hann var sigmaður í fjölda ára og varð fyrstur til þess að nota herhjálm til varnar gegn grjótkasti við bjargsig.

Sölvi bjó á Hesteyri 1938-52 og var síðasti hreppstjóri og oddviti hreppsins. Hann fluttist manna siðastur úr hreppnum. Búsettur í Bolungarvík eftir að hann fluttist frá Hesteyri.