Jón Jónsson, Hesteyri

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 2. maí 2025 kl. 23:17 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 2. maí 2025 kl. 23:17 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
Jump to navigation Jump to search

Jón Jónsson. Fæddur um 1760. Dáinn 26. ágúst 1811.

Óvíst er um foreldra hans. Ef till vill hefur hann verið sonur Jóns Bjarnasonar á Hesteyri, eins og áður er minnzt á.

Kona: Ragnhildur, fædd um 1764, dáin 7. júlí 1843, Einarsdóttir.

Börn Oddur Jónsson húsmaður í Þverdal. Jón Jónsson bóndi í Efri Miðvík. Einar Jónsson, Hesteyri dó ungur. Katrín Jónsdóttir, Hesteyri drukknaði ung í smalamennsku. Gísli Jónsson dó ungur. Steinn Jónsson bóndi á Álfsstöðum í Hrafnfirði.

Jón Jónsson bjó á Hesteyri 1787-1811, þar af tvör ár á Seleyri í Hesteyrarlandi. Jón fórst með séra Guðmundi Sigurðssyni á Stað.

Ragnhildur ekkja Jóns bjó á Hesteyri til 1817 eða lengur. Hún fluttist síðar til Steins sonar síns á |Álfsstöðum og andaðist þar.