Guðrún Sigfúsdóttir, Horni
Jump to navigation
Jump to search
Guðrún Sigfúsdóttir. F. 1702. Dánarár ókunnugt. Hún var dóttir Sigfúsar Semingssonar bónda á Horni í Sléttuhreppi og konu hans Ástríðar Þorleifsdóttur.
Guðrún Sigfúsdóttir bjó á Horni 1703, þegar manntalið var tekið, en Sléttuhreppsbókin segir ekkert vitað um hana eftir manntalið.
Íslendingabók segir hana hafa átt börn með Sigmundi Magnússyni sem var á Breiðabóli í Hólshreppi 1703. Hann var síðar Bóndi á Gili, í sama hreppi. Grunnvíkingabók (II bls. 313) segir að hann hafi verið bóndi á Nesi í Grunnavíkurhreppi 1753 og drukknað 1754.
Börn hennar með Sigmundi: Jósef Sigmundsson f. 1736, bóndi í Bolungarvík á Ströndum, Magnús Sigmundsson f. 1743, bóndi á Leiru og Ingibjörg Sigmundsdóttir f. 1747.