Jón Gíslason, Höfn
Jón Gíslason. F. 27. janúar 1815. D. 25. júlí 1874.
Foreldrar: Gísli Jústsson í Þjóðólfstungu í Hólshreppi og Guðný Jónsdóttir heimasæta í Minnihlíð. Guðný giftist síðar Ólafi Helgasyni. Þau bjuggu á Breiðabóli í Skálavík, en fluttust þaðan að Hrafnfjarðareyri í Jökulfjörðum 1824. Þau bjuggu síðar í Barðsvík.
Kona 1: 22. september 1838, Katrín, d. 7. sept. 1839, Sigmundsdóttir, Jósefssonar í Reykjafirði, síaðr bónda á Horni.
Barn: Petólína Jónsdóttir, d. 15. marz 1887, giftist ekki.
Kona 2. 25. ágúst 1841, Ingibjörg, f. 14. nóvember 1822, d. 29. júní 1890, Sigmundsdóttir, Jósefssonar, systir Katrínar fyrri konu Jóns.
Börn: Kristján Jónsson bóndi í Höfn og í Hælavík. Lovísa Jónsdóttir, kona Baldvins Sigfússonar húsmanns á Horni. Elínborg Jónsdóttir, kona Samúels Guðmundssonar húsmanns á Horni. Sigmundur Jónsson bóndi í Höfn.
Jón Gíslason bjó í Barðsvík 1838-40. Húsmaður á Horni 1840-42. Bóndi í Höfn frá 1844 til dánardags. Greindur maður og vel gjör um íþróttir.