Þórður Sveinsson, prestur

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search

Séra Þórður Sveinsson. Fæddur 1623. Dáinn 1667.

Foreldrar: Sveinn Ólafsson í Bæjum á Snæfjallaströnd og kona hans Ingibjörg Þórðardóttir.

Ókvæntur og barnlaus.

Stúdent frá Skálholtsskóla 1647. Tók við Stað 1657 í skiptum við síra Árna Loftsson.

Fékk Ögurþing 1652 Stað í Aðalvík 1657, í skiptum við Árna Loptsson, bilaðist á geði og fór þaðan 1658, enda hafði hann skrifað byzkupi, að hann myndi láta þarf af prestskap, og urðu deildur af skiptunum með honum og síra Árna Loptssyni. Var í þjónustu Brynjólfs byzkups Sveinssonar 1663-5, veiktist í Skálholti í árslok 1665 og lá þar fram á sumar, var þá fluttur vestur að Bæjum, til bróður síns, og andaðist þar ókv. og bl. Hann var vel að sér, stærðfróður og hugvitsmaður (lét bæjarstrauminn í Skálholti knýja tæki til að berja fist, mældi sigluna á duggu síra Páls í Selárdal), hefir samið rím (sjá Lbs. og AM); þýðing hans á Compendium cosmographicum eftir Hans Nansen er varðveitt í Lbs. í eftirriti.[1]

Íslenzkar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1940, 5. bindi, bls. 114

Prestatal og prófasta á Íslandi, bls. 204