Guðfinna Sigmundsdóttir, Horni
Guðfinna Sigmundsdóttir. Fædd 2. júlí 1801. Dáin 14. mars 1847.
Foreldrar: Sigmundur Jósefsson bóndi í Bolungarvík á Ströndum og á Horni og kona hans Margrét Ólafsdóttir.
Eiginmaður: 10. ágúst 1822, Einar Sigurðsson fæddur 1800, dáinn 4. janúar 1854.
Börn: Elías Einarsson, fórst af steinkasti í Hornbjargi 7. júlí 1846, átján ára gamall. Friðrik Einarsson, Rekavík bak Höfn bóndi á Steinólfsstöðum og síðast í Hælavík. Guðleifur Einarsson, drukknaði ungur og ókvæntur. Sigurður Einarsson bóndi á Dynjanda í Grunnavíkurhreppi. Bjargey Einarsdóttir, átti Arnór Ebenezersson bónda í Rekavík bak Höfn. Margrét Einarsdóttir, átti fyrr Sigfús Jónsson hreppstjóra á Höfðaströnd. Hann drukknaði eftir tveggja ára sambúð þeirra hjóna. Seinni maður Markgrétar var Hagalín Jóhannesson á Steig. Helga Friðrika Einarsdóttir, átti Bæring Vagnsson í Furufirði. Jóhanna Einarsdóttir giftist ekki. Barn hennar með Bæringi Vagnssyni var Einar Bæringsson hreppstjóri á Dynjanda. Annað barn Jóhönnu með Jóhannesi Jónssyni í Kvíum var Ketilríður Jóhannesdóttir kona Benedikts Hermannssonar í Reykjarfirði.
Einar Sigurðsson var bóndi á Horni 1822-25, húsmaður í Reykjafirði á Ströndum 1825-27, en fluttist þá aftur að Horni og bjó þar til 1832. Bóndi á Stað í Grunnavík 1832-38, var hreppstjóri í Grunnavík í nokkur ár. Bóndi í Höfn 1838-44. Bóndi á Horni frá 1844 til dánardags. Einar var við góð efni, þegar hann lézt.