Snæbjörn Torfason

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search

Prófastur séra Snæbjörn Torfason, Kirkjubóli í Langadal.

Foreldrar: Torfi Jónsson, sýslumaður á Kirkjubóli í Langadal og kona hans Þorkatla Snæbjörnsdóttir frá Keldum.

Er fyrsti prestur á Kirkjubóli í Langadal, fyrir 1590. Er prófastur í norður Ísafjarðarsýslu 1594.

Gaf Stað í Aðalvík til kirkjustaðar með bréfi, dagsettu 16. ágúst 1602.

[Þorsteinn Jónsson prestur er t]alinn hafa komið að norðan með Þóru Jónsdóttur (á Holtastöðum, Björnssonar), sem átti síra Snæbjörn Torfason á Kirkjubóli 1594; gæti hann þá hafa orðið heimilisprestur þar, en fekk Stað í Aðalvík 11. ág. 1596 og er þar enn prestur 21. ág. 1643. Síra Snæbjörn á Kirkjubóli gaf Stað í Aðalvík til prestseturs 1602, hvort sem til hefir dregið vinátta við síra Þorstein eða ekki.[1]

Íslenzkar æviskrár frá landsnámstímum til ársloka 1940, bls. 311