Munur á milli breytinga „Brynjólfur Brynjólfsson, Kjaransvík“

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search
(Ný síða: <includeonly>Brynjólfur Brynjólfsson</includeonly><noinclude>'''Brynjólfur Brynjólfsson'''</noinclude>. F. um 1799. D. 19. nóvember 1839. ...)
 
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 21. október 2012 kl. 15:35

Brynjólfur Brynjólfsson. F. um 1799. D. 19. nóvember 1839.

Foreldrar: Brynjólfur Jónsson bóndi í Hælavík og kona hans Guðrún Snorradóttir.

Kona: 31. ágúst 1834, Engibjört, f. 1807, d. 31. júlí 1870, Mikaelsdóttir, Björnssonar í Kjaransvík.

Börn: Bæring Brynjólfsson, vinnumaður, var vinnumaður á Horni 1860, fluttist til Grunnavíkur, mun ekki hafa kvænzt. Hermann Brynjólfsson, fórst í lendingu á Almenningum 6. febrúar 1878 ókvæntur.

Brynjólfur var bóndi í Hælavík 1827-32. Húsmaður og bóndi í Kjaransvík 1832-39.