Guðni Hjálmarsson, Sléttu

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 17. nóvember 2012 kl. 23:58 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 17. nóvember 2012 kl. 23:58 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Guðni Hjálmarsson. F. 22. febrúar 1850. D. 21. febrúar 1931.

Foreldrar: Hjálmar Jónsson bóndi á Látrum og kona hans Berglína Jónsdóttir.

Kona: 13. sept. 1877, Karitas, f. 27. júní 1850, d. 12. apríl 1929, Friðriksdóttir, Jónssonar bónda í N. Miðvík. Hún átti áður Sigurð Hermannsson á Sléttu.

Börn: Júdit Guðnadóttir, átti Guðjón Jósefsson á Hesteyri. Sölvi Guðnason bóndi á Sléttu. Jón Guðnason bóndi á Sléttu. Friðmey Guðnadóttir, var heitmey Jóhannesar Guðmundssonar á Sæbóli.

Fóstursonur Guðna var Hilaríus Haraldsson á Hesteyri og að nokkru Ragnar Erlendsson verkstjóri á Akranesi.

Guðni Hjálmarsson bjó á Látrum 1877-85. Bóndi á Búðum í Hlöðuvík 1885-87. Bóndi á Sléttu frá 1887 til æviloka.

Hann fékkst mikið við útgerð með félaga sínum Brynjólfi Þorsteinssyni, en þeir bjuggu lengst af félagsbúi og var samvinna þeirra einstök. Þeir gerðu út tvo sexæringa, síðar lengi tvo vélbáta og farnaðist vel, voru með umsvifamestu bændum sveitarinnar.

Drengur góður og ljúfmenni.