Hallur Erlendsson

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 17. september 2011 kl. 18:53 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 17. september 2011 kl. 18:53 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
Jump to navigation Jump to search

Hallur Erlendsson (Hallur á Horni) F. um 1699. Var enn á lífi 1762.

Foreldrar: Erlendur Þorsteinsson og kona hans Arnbjörg Erlendsdóttir. Þau bjuggu í Laxárdal í Dalasýslu.

Kona Sigríður Hallvarðsdóttir.

Synir þeirra voru: Hallvarður Hallsson skáld á Horni og síðast í Skjaldbjarnarvík. Jón Hallsson.

Hallur Erlendsson bjó fyrst að Lambastöðum í Laxárdal í Dalasýslu. Bóndi á Felli í Kollafirði í Strandasýslu 1735. Hann var orðinn bóndi á Horni 1756 og mun hafa búið þar til dánardags. Hallur er fræg þjóðsagnarpersóna.