Hlöðuvík, tilvitnanir

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 9. desember 2012 kl. 15:26 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 9. desember 2012 kl. 15:26 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search
Nr. XXVIII

St.

Anno 1663, 2. Julii, fjórða daginn.

Þetta hvalskeyti með stimpilmarki fannst í þeim skornum og skertum hval, sem fannst í fyrra sumar, 1662, á jörðunni Hlöðuvík á Hornströndum, liggjandi til Aðalvíkursóknar, en er eign Grunnavíkurkirkju. Var skotsmannshlutur virtur af sex mönnum til VI alna vaðmáls, og er hjá mér undirskrifuðum í varðveizlu. Til merkis hér um er þetta mín eigin hönd með undirskrifuðu nafni.

Að stað við Grunnavík, 1663, 10. Junii.
Sigurður p(restur) Gíslason.

Biður presturinn, að skutulmarkið og járnið sé í lögréttu auglýst, og járnið sendist aftur. Járnið er með stimpilmarki beggja megin, en markjárnið er með þessu marki: JON GuðmundS SON, hver eða vill hafa það framvegis.[1]

  1. Alþingisbækur Íslands VII (1663-1683), bls. 23