Kristján Jóhannesson, Rekavík bak Höfn

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 22. september 2011 kl. 22:55 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 22. september 2011 kl. 22:55 eftir Ingvi (Spjall | framlög) (Ný síða: <noinclude>'''Kristján Jóhannesson'''</noinclude><includeonly>Kristján Jóhannesson</includeonly>. F. 4. apríl 1861. D. 30. janúar 192...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Kristján Jóhannesson. F. 4. apríl 1861. D. 30. janúar 1927.

Foreldrar: Jóhannes Sakaríasson, síðast bóndi í Rekavík, og kona hans Guðrún Hjálmarsdóttir.

Kona: 23. sept. 1884, Hansína Steinunn, f. 10. febr. 1852, d. 26. marz 1932, Finnsdóttir, Gestssonar, bónda í N. Miðvík.

Börn: Margrét Kristjánsdóttir, f. 22. ág. 1889, átti Elías Angantýsson sjómann í Bolungarvík. Jóhanna Guðríður Kristjánsdóttir átti Þorkel Sigurðsson. Fóstursonur þeirra hjóna var Jóhannes Hjálmarsson bróðursonur Kristjáns.

Kristján var fyrst húsmaður í Rekavík. Bóndi í Hælavík 1889-92. Bóndi í Rekavík 1892-1908. Hann fluttist þaðan til Bolungarvíkur, síðar til Siglufjarðar og átti þar heima til æviloka.