Ljóðabréf Hallvarðs Hallsonar

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 21. september 2011 kl. 23:08 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 21. september 2011 kl. 23:08 eftir Ingvi (Spjall | framlög) (Ný síða: Efni birta mitt skal mál í mærðar blandi … [Ef að greina eg skal þér í efnum vöndum eyðiplássið allt á Ströndum, ólíkt er það Suðurlöndum. Á Hornströndum ekki ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Efni birta mitt skal mál í mærðar blandi …

[Ef að greina eg skal þér í efnum vöndum eyðiplássið allt á Ströndum, ólíkt er það Suðurlöndum.

Á Hornströndum ekki jörðin ört er gróin. Hæst eru fjöllin helzt við sjóinn; hafa þau á sér jökulsnjóinn.

Víða er þar vandasamt og vegur stríður allt um kring, á allar síður, enginn maður hestum ríður.

Sjódraugarnir bæði bæi og byggðir kanna, álíkt fyrir augum manna eins og flokkur bjargbúanna.]

[Á Almenningum allt um kring sem enn er vandi víða sér þar viður á landi vel sandorpinn óþrjótandi.]

[Leit ég síðan Hornbæ, Höfn og háa sanda, en á svið til hægri handar Hælavíkurbjargið standa.]

[Kátlegt er það,kynni eg þér,minn kæri vinur, Hornbjarg undir harðast stynur, þá Hælavíkurbjargið hrynur.]

[Áður fyrr, þá allt var byggt í eyðilöndum, í helgidómsins heiðri vöndum í Höfn var kirkja gjörð á Ströndum

Eftir vana sannleiks settum söngur versa, yfirvaldið bauð að blessa bæði haust og vor var messað.

Vígður garður veggjalaus þar var til búinn, leiðin síðan liggja rúin, landsins eftir venju snúin.

Þessi bygging orðin er í auðnu tómi nú á tíðum sér ei sómi svo sem fyrr í heiðnidóm.]

… þeir sem lesa hald til góða. Endir