Munur á milli breytinga „Sigurður Sigurðsson, Horni“

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 21. október 2012 kl. 22:26

Sigurður Sigurðsson. F. um 1777. D. 20. febr. 1836.

Foreldrar: Sigurður Jónsson bóndi í Reykjarfirði á Ströndum og kona hans Ingibjörg Sigmundsdóttir.

Sigurður Sigurðsson var tvíkvæntur, en ekki er vitað hver fyrri kona hans var.

Börn þeirra: Jón Sigurðsson, d. 1. marz 1825, Hallvarður Sigurðsson, d. 23. apríl 1839, mun hafa verið vanheill, dó „á vegerðarreisu“, var á sveit í Sléttuhreppi.

Kona 2: 9. júlí 1825, Guðrún, d. 30. nóvember 1853, Jónsdóttir Þorleifssonar á Norðureyri í Súgandafirði.

Börn: Sesselja Sigurðardóttir, Magnús Sigurðsson.

Sigurður Sigurðsson bjó á Horni 1810-11. Bóndi á Steinólfsstöðum í Grunnavíkurhreppi 1811-1836.