Sigurður Sigurðsson, Horni
(Endurbeint frá Sigurður Sigurðsson (fæddur 1777))
Jump to navigation
Jump to search
Sigurður Sigurðsson. F. um 1777. D. 20. febr. 1836.
Foreldrar: Sigurður Jónsson bóndi í Reykjarfirði á Ströndum og kona hans Ingibjörg Sigmundsdóttir.
Sigurður Sigurðsson var tvíkvæntur, en ekki er vitað hver fyrri kona hans var.
Börn þeirra: Jón Sigurðsson, d. 1. marz 1825, Hallvarður Sigurðsson, d. 23. apríl 1839, mun hafa verið vanheill, dó „á vegerðarreisu“, var á sveit í Sléttuhreppi.
Kona 2: 9. júlí 1825, Guðrún, d. 30. nóvember 1853, Jónsdóttir Þorleifssonar á Norðureyri í Súgandafirði.
Börn: Sesselja Sigurðardóttir, Magnús Sigurðsson.
Sigurður Sigurðsson bjó á Horni 1810-11. Bóndi á Steinólfsstöðum í Grunnavíkurhreppi 1811-1836.