Stígur Bæring Vagn Haraldsson

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 23. september 2011 kl. 22:47 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 23. september 2011 kl. 22:47 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
Jump to navigation Jump to search
Stigur B V Haraldsson.jpg

Stígur Bæring Vagn Haraldsson . F. 13. september 1892. D. 8. september 1954.

Foreldrar: Haraldur Stígsson bóndi á Horni og kona hans Elín Bæringsdóttir.

Kona: 15. október 1916, Jóna Jóhannesdóttir, f. 1. sept. 1892.

Börn: Haraldur Stígsson, f. 27. apríl 1914, búsettur í Reykjavík, átti Elín Guðmundsdóttir frá Horni, skáldmæltur. Bergmundur Stígsson, f. nóvember 1915, trésmíðameistari á Akranesi, kona Jóna Björg Guðmundsdóttir hjúkrunarkona. Sigrún Kristjana Stígsdóttir, f. 28. nóvember 1919, átti Hörð Davíðsson rafvirkja í Kópavogi. Arnór Aðalsteinn Stígsson, f. 14. janúar 1922, trésmíðameistari á Ísafirði, kvæntur Málfríði Halldórsdóttur. Rebekka Stígsdóttir, f. 29. júní 1923, kona Sturlu Halldórssonar skipstjóra á Ísafirði. Anna Stígsdóttir, f. 20. júní 1925. Helga Friðrika Stígsdóttir, f. 24. júlí 1926, kona Ragúels Hagalínssonar úr Grunnavík. Guðný Stígsdóttir, f. 24. ágúst 1928, kona Benedikts Davíðssonar frá Sellátrum í Tálknafirði. Stígur Stígsson (fæddur 1930, f. 28. apríl 1930, ókvæntur.

Stígur Haraldsson bjó á Horni 1916—1946. Hann fluttist þá til Ísafjarðar og bjó þar síðan. Dugnaðarmaður og drengur góður.