Stígur Stígsson, Horni

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 22. október 2012 kl. 22:30 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2012 kl. 22:30 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Stígur Stígsson. F. 12. maí 1832. D. 20. janúar 1899.

Foreldrar: Stígur Jónsson bóndi á Sútarabúðum í Grunnavík og kona hans Rakel Eiríksdóttir.

Kona 1: 3. október 1856, Elín Ebenzersdóttir, ekkja Einars Sigurðssonar á Horni. Þau barnlaus.

Kona 2: 18. apríl 1889, Rebekka, f. 29 maí 1843, d. 7. júlí 1921, Hjálmarsdóttir, Jónssonar á Látrum. Börn: Haraldur Stígsson bóndi á Horni. Frímann Stígsson, f. 24. marz 1876, drukknaði með Jóni Guðmundssyni frá Marðareyri í Jökulfjörðum 9. des. 1893. Frímann ólst að nokkru upp hjá Kristjáni Jónssyni í Höfn. Anna Anika Stígsdóttir dó ung.

Stígur Stígsson bjó á Horni alla sína búskapartíð, frá 1856 til dánardags. Hann var þjóðhaga smiður og mikill athafnamaður, sem orð fór af og lengi hefur verið minnzt. Hann var hreppstjóri um skeið.