Ari Jónsson Skordal, prestur
Séra Ari Jónsson Skordal. Fæddur um 1768. Dáinn 26. nóvember 1831.
Foreldrar: Jón Runólfsson bóndi á Dagverðarnesi í Skorradal og kona hans Ingibjörg Aradóttir.
Kona 1: Steinunn, fædd 1768, dáin 5. júlí 1815, Vigfúsdóttir, Snorrasonar að Skarði í Lundareykjardal.
Börn: Ragnheiður Aradóttir, seinni kona Ólafs Ólafssonar bónda á Læk. Hún átti síðar Jóhannes Jónsson úr Neðri Miðvík. Jón Arason. Helga Aradóttir, giftist ekki. Sonur hennar með Kristjáni Halldórssyni, Þorgeir Kristjánsson, mikill bjargmaður, drukknaði ókvæntur 1. desember 1881.
Kona 2: 6. júní 1825, Guðrún, fædd 21. júlí 1794, dáin 18. júlí 1853, Helgadóttir, Erlendssonar á Heysholti á Landi. Börn þeirra dóu ung.
Ari Skordal brautskráðist úr Reykjavíkurskóla 1800. Hann bjó á Skálpastöðum í Lundareykjadal og víðar við fátækt. Fékk Stað í Aðalvík 1826, en veiktist skömmu síðar og var að taka að sér aðstoðarprest 1829.
Séra Ari var vel látinn, en naut sín ekki í prestsskap vegna veikinda.
Íslenzkar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1940, bls. 17-18