Elías Einarsson, Horni
Elías Einarsson. F. 5. apríl 1851. D. 20. okt. 1925.
Foreldrar: Einar Sigurðsson bóndi á Horni og seinni kona hans Elín Ebenezersdóttir.
Kona: Guðrún, f. 17. nóvember 1837, d. 16. marz 1923, Hermannsdóttir, Ásgrímssonar í Furufirði. Barnlaus.
Fóstursonur þeirra hjóna var Kristinn Grímsson bóndi á Horni.
Elías var bóndi á Horni allra sína búskapartíð að undanskildum nokkrum árum, sem hann bjó í Látravík. Elías var mikið hraustmenni og ókvalráður.
[Viðbót:
Þegar Elías hafði náð tvítugsaldri festi hann ráð sitt, fluttist árið 1870 norður í Þararlátursfjörð og gekk þar að eiga roskna stúlku, vel efnum búna, Guðrúnu Hermannsdóttur. Bjuggu þau hjón þar nokkur ár, og síðan í Látravík. Þaðan fluttust þau svo árið 1884 að Horni aftur og bjuggu þar góðu og rausnarlegu búi til þess, er Elías sál. nú fyrir þrem árum misti konu sína, sem þegar áður mátti heita lögst í kör, enda háöldruð, 85 ára. — Eigi varð þeim hjónum barna auðið, en 3 fóstursyni ólu þau upp: Grím Bjarnason, er hrapaði í Hornbjargi, Kristinn, er einnig er látinn, og svo annan Kristinn, son Gríms þess er hrapaði til dauða, og er hann enn á lífi, góður og dugandi bóndi á Horni, sem nú var búinn að taka við allri bústjórn af Elíasi fósturföður sínum.[1]
]