Húsfólk
Húsfólk var fyrst og fremst leigjendur í húsnæði bænda án þess að hafa vinnuskyldu eða vistarskyldu hjá þeim eins og vinnufólk hafði.[1]
einstaklingar sem leigðu húsaskjól hjá bændum á lögbýlum, voru út af fyrir sig, stundum með fjölskyldu sinni, og höfðu oft einhver jarðarafnot vegna eigin búfjár; voru við lýði fram á 20. öld. Þeir höfðu stundum ákveðna vinnuskyldu en töldust yfirleitt ekki vinnumenn (hjú) bænda. Húsmennska var því nokkurs konar millistig milli bænda og vinnufólks. Þegar húsmenn (eða vinnumenn) fluttust til sjávarsíðu og stunduðu sjó höfðu þeir venjulega einhverja grasnyt en tómthúsmenn enga. Oft urðu orðin húsmaður og tómthúsmaður líkt og samheiti. Einnig voru hjáleigubændur oft nefndir húsmenn í heimildum á fyrri hluta 19. aldar, sennilega að danskri fyrirmynd. Húsmenn og hjáleigubændur höfðu engan rétt til þátttöku í málefnum hrepps; þeir skyldu vera undir vernd lögbýlisbónda, sbr. alþingisdóm frá 1500, þar sem sagði: „Húsmenn sína skal bóndi annast, ef þeir verða þrotamenn.“[2]
Maður sem leigir húsaskjól hjá bónda á lögbýli en er þar út af fyrir sig, eftir atvikum með maka og börn, stundum með eigin bústofn og umsamin jarðarafnot...[3]