Sigurður Jónsson, Efri Miðvík
Jump to navigation
Jump to search
Sigurður Jónsson. Hann var bóndi í Efri Miðvík 1753, en hans er ekki getið í bændatali 1756 og hefur þá líklega verið dáinn.
Hann var einn þeirra bænda í hreppnum, sem skrifaði undir kæru á hendur Erlendi Ólafssyni sýslumanni 26. marz 1754. Töldu þeir Erlend óhæfan til þess að vera sýslumaður. Þá skrifaði Sigurður undir tvö vottorð fyrir Gísla Bjarnason á Látrum í málabrasi hans við Erlend sýslumann. Er annað vottorðið dagsett 1. júlí 1753, en hitt 8. janúar 1754. Eru öll þessi plögg með hendi Sigurðar og hefur hann verið listaskrifari. Ekki er vitað um ætt Sigurðar eõa uppruna. Ekki er heldur vitað, hvort hann hefur átt einhverja afkomendur.