Tómas Snartarson

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search

Tómas Snartarson (Thomas Snarttarson, Snartarson, Svartsson) gaf Horn til Hafnseyrarkirkju.

Tómas Snartarson á Eyri var göfugmenni og myndarbóndi, vel fjáður. Í máldaga er skýrt frá því, að hann hafi gefið kirkjunni á Eyri stórgjafir. Æviatriði hans eru annars lítt kunn. Þess er þó getið að hann tók undir sig Selárdal, þegar leimenn tóku undir sig kirkjustaðina 1284 undir forystu Hrafns Oddssonar, og var þó Tómas vinveittur Árna biskupi Þorlákssyni. Tómas Snartarson andaðist 1338.[1]


Í Vilkinsmáldaga 1397 (máldaga Eyrar í Arnarfirði) er nefnd jörðin Hornströnd:

Mariukirkia oc hins heilaga Peturs a Eyri j Arnarfirdi a Karlstadi oc Hornstrond med ollumm giædumm, tolli oc vidumm hvorutueggium ... Þetta lagdi Thomas Snarttarson til kirkiu a Eyri tolfttung i hvalreka a Hornstrond.[2]

Tómas kemur nokkrum sinnum fyrir í Árna sögu biskups Þorlákssonar:

  • Hrafnseyri - Böðvar Bjarnason, bls. 45
  • Diplomatarium Islandicum - Íslenkt fornbréfasafn IV, 145-146. bls.