Munur á milli breytinga „Hannes Grímsson“

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search
 
Lína 22: Lína 22:
 
  „Sama dag begrafinn tugthúslimur Hannes Grímsson, 33 ára, dó 20. Martii af hor og vesöld.“  
 
  „Sama dag begrafinn tugthúslimur Hannes Grímsson, 33 ára, dó 20. Martii af hor og vesöld.“  
 
[http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2198044 Lögberg 6. apríl 1933]
 
[http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2198044 Lögberg 6. apríl 1933]
 +
 +
*[https://baekur.is/bok/dae71bda-a831-41e1-880f-9d188d59c7f4/16/90/Althingisbaekur_Bindi_16_Bls_90 17. júlí 1782, Alþingisbækur 16. bindi, bls. 90]
 +
*[https://baekur.is/bok/dae71bda-a831-41e1-880f-9d188d59c7f4/16/176/Althingisbaekur_Bindi_16_Bls_176 16. júlí 1783, Alþingisbækur 16. bindi, bls. 156]
 +
*[https://baekur.is/bok/dae71bda-a831-41e1-880f-9d188d59c7f4/16/176/Althingisbaekur_Bindi_16_Bls_176 17. júlí 1783, Alþingisbækur 16. bindi, bls. 157]
 +
*[https://baekur.is/bok/dae71bda-a831-41e1-880f-9d188d59c7f4/16/196/Althingisbaekur_Bindi_16_Bls_196  Alþingisbækur 16. bindi, bls. 176]
  
 
<noinclude>[[Category:Annað fólk]]</noinclude>
 
<noinclude>[[Category:Annað fólk]]</noinclude>

Núverandi breyting frá og með 16. júlí 2026 kl. 11:28

Hannes Grímsson var strokufangi sem hafðist við á Hornströndum, voru nokkri bændur sektaðir fyrir að hýsa hann, m.a. Einar Bjarnason, þá bóndi í Kjaransvík.

„1780...
Hannes Grímsson stal í Búðarkaupstað 20 rdlum croner frá Jóni Arnbjarnarsyni.“ 

Annálar 1400-1800, 6. bindi, bls. 227

„1783...
Þjófnaðarmál Hannesar Grímssonar úr Snæfellssýslu kom enn nú fyrir lögþingsréttinn, hvar Hannes var dæmdur þann 17da júlí til að kagstrýkjast, brennimerkjast og erfiða sinn lífstíð í Khafnar schlaverie, samt betala tvígjald þeirra stolnu peninga með 40 rdlm cróner, en ekkert ígjald, þar þeim var aftur skilað og að hafa forbrotið sína búslóð.

Annálar 1400-1800, 6. bindi, bls. 250


„STROKUFANGAR
Það var altítt hjer fyrrum að fangar stryki úr hegningarhúsinu í Reykjavík. Þegar þeir náðust aftur voru þeir látnir hafa sjerstakan búning, treyju með hvítum ermum, — Einn fanganna hjet Hannes Grímsson og þótti sjerstaklega viðsjárverður. Hann hafði ásamt öðrum fanga brotist inn í búð, strokið síðan, stolið aftur og náðst. Var hann því færður í þennan búning, en auk þess fest bjalla á höfuð hans til þess að heyrast skyldi í honum ef hann hlypist brott. Ekki er getið hvernig bjallan var fest.“

Lesbók Morgunblaðsins 14. mars 1948

Hannes lést 1787:

„Sama dag begrafinn tugthúslimur Hannes Grímsson, 33 ára, dó 20. Martii af hor og vesöld.“ 

Lögberg 6. apríl 1933