Kjaransvík
Efnisyfirlit
- 1 Ábúendur.
- 1.1 Jón Jónsson
- 1.2 Einar Bjarnason
- 1.3 Ásmundur Þorleifsson
- 1.4 Ívar Bjarnason
- 1.5 Jón Snorrason
- 1.6 Mikael Björnsson
- 1.7 Rósinkar Mikaelsson
- 1.8 Brynjólfur Brynjólfsson
- 1.9 Hjálmar Jónsson
- 1.10 Salman Jónsson
- 1.11 Agnar Sigurðsson
- 1.12 Guðmundur Snorrason
- 1.13 Kjartan Ólafsson
- 1.14 Brynjólfur Guðmundsson
- 1.15 Friðrik Guðmundsson
- 1.16 Ísleifur Ísleifsson
- 1.17 Jón Björnsson
- 1.18 Bárður Kristján Guðmundsson
- 1.19 Guðni Kjartansson
- 1.20 Bjarni Hákon Bjarnason
- 1.21 Ottó Helgi Guðlaugsson
- 1.22 Guðmundur Þorvaldsson
- 1.23 Þorbjörn Guðmundsson
- 1.24 Vagn Jónatan Jónsson
Ábúendur.
Jón Jónsson
Jón Jónsson, Kjaransvík. F. um 1631. Dánaár ókunnugt.
Kona: Guðrún Jónsdóttir f. um 1647.
Jón bjó í Kjaransvík 1703. Var þá ekkert annað heimilisfólk þar en þau hjónin.
Einar Bjarnason
Einar Bjarnason. F. um 1742. D. 2. júlí 1818. Ekki er vitað um foreldra hans.
Kona: Þórunn Markúsdóttir, f. um 1737 í Grunnavík.
Börn: Bjarni Einarsson d. 18. ágúst 1816, Oddgerður Einarsdóttir.
Einar bjó í Kjaransvík frá því um 1770-1789. Bóndi á Horni frá 1789 til dánardags.
Um Einar er lítið vitað. Hann var einn þeirra bænda, sem hýsti strokufangann Hannes Grímsson 1785 og varð að greiða sekt fyrir.
Ásmundur Þorleifsson
Ásmundur Þorleifsson. Hann var bóndi á Horni 1788-89, líklega aðfluttur, ef til vill sonur Þorleifs Guðmundssonar bónda á Hálsi á Ingjaldssandi.
Ásmundur var kominn í Þverdal 1784. Kona hans var Hildur Guðmundsdóttir. Dóttir þeirra var Helga Ásmundsdóttir, kona Páls Sigurðssonar á Horni. Hildur átti síðar Einar Einarsson yngri í Þverdal.
Ásmundur fluttist frá Horni í Kjaransvík 1789 og bjó þar til 1792-93. Þar mun hann hafa látizt, ekki gamall maður.
Ívar Bjarnason
Ívar Bjarnason, Rekavík bak Látur
Jón Snorrason
Jón Snorrason. F. 1776. D. 4. júní 1829.
Foreldrar: Snorri Einarsson í Höfn og Solveig Pétursdóttir kona hans.
Kona: 1800, Silfá, f. um 1773, d. 6. okt. 1854, Sigurðardóttir.
Börn: Þuríður Jónsdóttir, átti Vagn Ebenezersson hreppstjóra á Dynjanda. Solveig Jónsdóttir, átti fyrst Jón Jónsson í Höfn. Salman Jónsson bóndi í Kjaransvík. Guðný Jónsdóttir, ráðskona Stefáns Magnússonar húsmanns í Rekavík.
Jón Snorrason bjó víða. Hann var húsmaður í Höfn 1798-99. Bóndi í Hælavík 1801, í Kjaransvík 1805-11, á Hesteyri 1812-16. Bóndi á Álfsstöðum og Kvíum í Grunnavíkurhreppi 1816-22. Bóndi í Rekavík 1822-29. Þrátt fyrir tíða flutninga virðist Jón hafa komist sæmilega af.
Hann drukknaði ásamt Jóni Jónssyni tengdasyni sínum.
Mikael Björnsson
Mikael Björnsson. F. um 1722. D. 19. júní 1840.
Foreldrar: Björn Jónsson bóndi í Neðri-Miðvík, síðast í Görðum og kona hans Hildur Ólafsdóttir.
Börn: Rósinkar Mikaelsson bóndi í Kjaransvík. Engilbert Mikaelsson bóndi á Glúmsstöðum. Engilbjörg Mikaelsdóttir, átti Brynjólfur Brynjólfsson í Kjaransvík. Þorsteinn Mikaelsson bóndi í Efri-Miðvík.
Mikael var bóndi í Þverdal 1803-12. Bóndi í Hælavík 1816. Bóndi og húsmaður í Kjaransvík 1820-40.
Rósinkar Mikaelsson
[Rósinkar Mikaelsson, Kjaransvík|Rósinkar Mikaelsson]]. F. um 1802. D. 3. marz 1858.
Foreldrar: Mikael Björnsson bóndi í Kjaransvík og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir.
Kona: 1. sept. 1832, Ingibjörg, f. 1799, d. 23. maí 1836, Ísleifsdóttir Ísleifssonar á Hesteyri.
Barn: Rósinkar Rósinkarsson bóndi í Hælavík.
Rósinkar Mikaelsson bjó í Kjaransvík 1832-37.
Brynjólfur Brynjólfsson
Brynjólfur Brynjólfsson. F. um 1799. D. 19. nóvember 1839.
Foreldrar: Brynjólfur Jónsson bóndi í Hælavík og kona hans Guðrún Snorradóttir.
Kona: 31. ágúst 1834, Engibjört, f. 1807, d. 31. júlí 1870, Mikaelsdóttir, Björnssonar í Kjaransvík.
Börn: Bæring Brynjólfsson, vinnumaður, var vinnumaður á Horni 1860, fluttist til Grunnavíkur, mun ekki hafa kvænzt. Hermann Brynjólfsson, fórst í lendingu á Almenningum 6. febrúar 1878 ókvæntur.
Brynjólfur var bóndi í Hælavík 1827-32. Húsmaður og bóndi í Kjaransvík 1832-39.
Hjálmar Jónsson
Hjálmar Jónsson. Fæddur 1. maí 1805. Dáinn 5. marz 1842.
Foreldrar: Jón Jónsson bóndi á Stað, síðar á Sléttu, og kona hans Herdís Gísladóttir.
Kona: 15. september 1832, Hildur, fædd 1814, dáin 16. ágúst 1871, Ólafsdóttir, Ólafssonar á Læk. Hún átti síðar Jóstein Jónsson.
Börn: Jón Hjálmarsson bóndi á Látrum. Sigurður Hjálmarsson húsmaður á Sæbóli.
Hjálmar var fyrst við búskap á Sléttu. Bóndi á Glúmsstöðum 1837-40. Bóndi í Kjarnsvík 1840-42. Ekkja hans bjó þar áfram og giftist aftur Jósteini Jónssyni. Bjuggu þau í Kjaransvík til 1852.
Hjálmar varð bráðkvaddur á leið til Hesteyrar.
Salman Jónsson
Salman Jónsson. F. 13. marz 1812. D. 2. júlí 1862.
Foreldrar: Jón Snorrason bóndi á Hesteyri, síðast bóndi í Rekavík bak Höfn og kona hans Silfá Sigurðardóttir.
Kona: 27. okt. 1839, Valdís, f. 1802, d. 26. maí 1888, Jósefsdóttir, Jósefssonar í Bolungarvík á Ströndum.
Börn: Svíalín Salmansdóttir, átti Friðrik Guðmundsson í Kjaransvík. Salóme Salmansdóttir átti Friðrik Steinsson frá Álfsstöðum. Þau bjuggu í Grunnavík.
Salman var húsmaður í Hlöðuvík 1840, bóndi í Kjaransvík 1850-55. Bóndi í Tungu 1855-60. Húsmaður í Rekavík bak Höfn, þegar hann lézt. „Ekki ógreindur, en sérvitur“
Agnar Sigurðsson
Agnar Sigurðsson. F. 1810. D. 3. október 1851.
Foreldrar: Sigurður Björnsson á Atlastöðum og kona hans Kristín Jónsdóttir.
Kona: 7. nóv. 1841, Solveig Jónsdóttir, Rekavík bak Höfn, ekkja Hjálmars Jóhannssonar. Agnar var þriðji maður hennar.
Börn: Agnar Agnarsson, d. 18. marz 1905, vinnumaður á Læk og víðar, átti Herborgu Sigurðardóttur, ekkju Friðriks Einarssonar bónda í Rekavík.
Agnar Sigurðsson var húsmaður í Hlöðuvík 1841, húsmaður í Rekavík 1845 og húsmaður í Kjaransvík 1850-51. Hann drukknaði í Kjaransvíkurá.
Guðmundur Snorrason
Guðmundur Snorrason. F. 26. marz 1823. D. 4. april 1887.
Foreldrar: Snorri Brynjólfsson bóndi í Hælavík og kona hans Elísabet Hallvarðsdóttir.
Kona 5. okt. 1845, Sigurfljóð, f. 4. ágúst 1829, d. 28. júní 1883, Ísleifsdóttir, Ísleifssonar á Hesteyri. Börn: Friðrik Guðmundsson húsmaður í Kjaransvík. Geirmundur Guðmundsson bóndi á Atlastöðum.
Guðmundur Snorrason var húsmaður í Hælavík 1845-52. Bóndi í Kjaransvík frá 1852 til æviloka. Var forn í skapi og háttum, en góðviljaður drengskaparmaður.
Kjartan Ólafsson
Brynjólfur Guðmundsson
Brynjólfur Guðmundsson. F. 29. september 1846. D. 27. júní 1889.
Foreldrar: Guðmundur Snorrason húsmaður í Hælavík, síðar bóndi í Kjaransvík og kona hans Sigurfljóð Ísleifsdóttir.
Kona: 2. ágúst 1879, Jóhanna, f. 27. september 1849, d. 27. júlí 1882, Finndsdóttir, Gestssonar í Neðri-Miðvík.
Börn: Guðný Brynjólfsdóttir, f. 26. febrúar 1880, d. 31. ágúst 1907, kona Baldvins Jakobssonar á Horni. Guðríður Brynjólfsdóttir, f. 29. marz 1882, fluttist fimm ára gömul með Þórði Bjarnasyni á Látrum til Vesturheims. Hún giftist þar, átti ekki börn, en ól upp fósturbörn. Var enn á lífi 1966. Áður en Jóhanna Finnsdóttir giftist, átti hún tvö börn með Árna Jónssyni, sem síðar bjó í Skáladal. Annað þeirra var María Árnadóttir. Fór til Noregs og ílentist þar.
Brynjólfur mun hafa talizt húsmaður í Kjaransvík þau ár sem hann bjó þar i hjónabandi. Hann var síðast vinnumaður í Miðvík. Hann fórst úr Hælavíkurbjargi við eggsig.
Friðrik Guðmundsson
Friðrik Guðmundsson. Fæddur 20. apríl 1849. Dánn 5. marz 1915.
Foreldrar: Guðmundur Snorrason húsmaður í Hælvaík, síðar bóndi í Kjaransvík og kona hans Sigurfljóð Ísleifsdóttir.
Kona: 27. september 1878, Svíalín, fæddur 28. júlí 1844, dáinn 9. júlí 1924, Salmansdóttir, Jónsdóttir.
Börn: Hermann Friðriksson, lengst húsmaður á Atlastöðum. Margrét Friðriksdóttir, giftist ekki, var ráðskona hjá Hermanni bróður sínum.
Friðrik mun hafa verið húsmennsku hjá föður sínum í Kjaransvík. Var síðan hér og þar í sveitinni í vinnumennsku og húsmennsku.
Ísleifur Ísleifsson
Ísleifur Ísleifsson. F. 29. apríl 1832. D. 8. desember 1902.
Foreldrar: Ísleifur Ísleifsson bóndi á Langavelli á Hesteyri og kona hans Guðrún Jónsdóttir.
Kona 1: 13. sept. 1861, Guðríður, f. 20. júlí 1831, d. 6. okt. 1871, Bjarnadóttir, Þorsteinssonar á Hesteyri.
Börn: Hjálmfríður Ísleifsdóttir kona Guðna Kjartanssonar í Hælavík. Hermann Ísleifsson húsmaður á Látrum.
Kona 2: 20. sept. 1872, Karólína, f. 29. maí 1833, d. 22. des. 1876, Ólafsdóttir, Jónssonar í Hlöðuvík og á Atlastöðum. Hún átti áður Guðmund Þeófílusson á Látrum og á Atlastöðum.
Barn: Guðni Ísleifsson bóndi í Þverdal.
Kona 3: 6. sept. 1879, Þorbjörg, f. 2. janúar 1851, d. 4. ágúst 1924, Finnsdóttir, Gestssonar bónda í Skáladal. Þau Ísleifur skildu.
Börn: Jóhann Ísleifsson á Sæbóli. Marías Ísleifsson á Sæbóli. Sigríður Ísleifsdóttir, f. 1. sept. 1877, d. 9. apríl 1943. Giftist ekki en átti börn, lengst ráðskona í Rekavík bak Látur. Guðmundur Ísleifsson, drukknaði ókvæntur 20. október 1920. Hann var mállaus. Guðfinna Ísleifsdóttir, fluttist ung til Reykjavíkur, giftist ekki. Ásgeir Ísleifsson bóndi á Sæbóli.
Ísleifur var bóndi á Langavelli á Hesteyri 1862-70. Bóndi í Hlöðuvík 1870-85. Bóndi í Kjaransvík 1885-87. Hann andaðist á Sæbóli.
Jón Björnsson
Jón Björnsson. Fæddur 26. janúar 1844. Dáinn 17. apríl 1894.
Foreldrar: Björn Markússon og Guðrún Þórðardóttir vinnuhjú á Hesteyri.
Kona: Ingveldur, fædd 1829, dáin 16. febrúar 1907, Jónsdóttir, Jónssonar húsmanns á Fossi í Otradalssókn í Arnarfirði.
Börn: Guðjón Jónsson húsmaður í Kjaransvík og Rekavík bak Höfn. Margrét Jónsdóttir, giftist ekki, var síðast vinnukona í Rekavík bak Höfn.
Jón Björnsson var vinnumaður á Ísafirði, kvæntist þar og kom þaðan aftur 1869. Hann var fyrst húsmaður í Efri Miðvík og á Hesteyri. Bóndi í Kjaransvík frá 1887 til dánardags.
Bárður Kristján Guðmundsson
Bárður Kristján Guðmundsson. Fæddur 27. desember 1867. Dáinn 28. maí 1919.
Foreldrar: Guðmundur Jónsson og Sigríður Jónsdóttir, Hesteyri, ógift vinnuhjú á Sléttu. Þau giftust síðar og bjuggu síðar Langavelli á Hesteyri. Bárður var af ýmsum talinn sonur Hermanns Sigurðssonar á Sléttu.
Kona 1: 6. janúar 1894, Júdit, fædd 26. ágúst 1866, dáin 19. apríl 1898, Þorsteinsdóttir, Bjarnasonar í Efri-Miðvík.
Börn: Klemens Kristján Kristjánsson, fæddur 14. maí 1895, kornræktarstjóri, kvæntur Ragnheiði Nikulásdóttur. Önnur börn þeirra dóu ung.
Kona 2: Guðrún Vigdís, fædd 12. janúar 1966, dáin 10. september 1946, Guðmundsdóttir, Gíslasonar á Ánanaustum í Reykavík.
Barn: Sverrir Kristjánsson, fæddur 7. febrúar 1908, sagnfræðingur í Reyjavík, kvæntur Bínu Kristjánson kennara.
Barn Bárðar Kristjáns með Sigríði Ísleifsdóttur, Amalía Ingibjörg, fædd 7. október 1898, húsfreyja í Reykjavík.
Barn með Guðfinnu Andrésdóttur, þá vinnukonu í Bræðratungu í Biskupstungum, Þórunn, fædd 22. febrúar 1905.
Báðrur Kristján Guðmundsson var búfræðingur frá Ólafsdal, gáfaður og stórhuga, en skorti fé til framkvæmda. Hann stofnaði búnaðarfélag í Sléttuhreppi og hugði á félagasamtök og framkvæmdir. Hann bjó í Þverdal 1895-96. Bóndi í Kjaransvík 1896-98, þar missti hann fyrri konu sína. Hann reisti sér timburhús á Hesteyri og mun hafa hugað þar á verzlun, en lenti þar í húsbruna. Eftir það var hann lengst búsettur í Reykjavík.
Guðni Kjartansson
Guðni Kjartansson. F. 5. maí 1858. D. 17. október 1931.
Foreldrar: Kjartan Ólafsson bóndi á Atlastöðum og kona hans Ingibjörg Sakaríasdóttir.
Kona: 26. sept. 1881, Hjálmfríður, f 1. maí 1860, d. 7. maí 1935, Ísleifsdóttir, Ísleifssonar á Hesteyri og í Hlöðuvík.
Börn: Guðríður María Guðnadóttir, f. 2. apríl 1881, d. 11 júní 1968, átti Svein Vopnfjörð, bjuggu í Reykjavík. Ingibjörg Kristín Guðnadóttir átti Guðlaug Hallvarðsson á Búðum í Hlöðuvík. Guðmundur Jón Guðnason bóndi á Búðum í Hlöðuvík. Sigmundur Ragúel Guðnason bóndi í Hælavík. Stefanía Halldóra Guðnadóttir, átti Sigurð Sigurðsson bónda í Hælavík. Guðrún Guðnadóttir dó ung. Fóstursonur þeirra hjóna var dóttursonur þeirra, Þórleifur Bjarnason.
Guðni bjó í Hælavík 1882-98. Bóndi í Kjaransvík 1898-99, fluttist þá aftur í Hælavík og bjó þar til 1920, oftast í tvíbýli. Húsmaður á Búðum í Hlöðuvík frá 1920 til æviloka.
Bjarni Hákon Bjarnason
Bjarni Hákon Bjarnason. F. 1865. D. 11. nóv. 1913.
Foreldrar: Bjarni Hákonarson bóndi á Arnarnesi í Dýrafirði og kona hans Halldóra Þórarinsdóttir.
Kona: 2. okt. 1892, Sigríður, f. 31. ágúst 1862, Kjartansdóttir, Ólafssonar á Atlastöðum.
Börn: Guðjón Ágústa Bjarnadóttir, kona Guðjóns Jóhannssonar skósmiðs í Súgandafirði. Halldóra Bjarnadóttir, hjúkrunarkona í Reykjavík, giftist ekki. Kjartan Bjarnason bóndi í Stórhólmi í Leiru. Ingibjörg Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík. Guðrún Bjarnadóttir, giftist ekki.
Bjarni Hákon bjó á Arnarnesi í Dýrafirði 1893-99. Bóndi í Kjaransvík 1899-1900. Bóndi á Búðum í Hlöðuvík 1900-1902. Bóndi í Dýrafirði 1902-1910. Húsmaður í Súgandafirði 1910-1913. Hann fórst með vélbót í fiskiróðri úr Súgandafirði. Ekkja hans bjó eftir það í Súgandafirði, en fluttist til Reykjavíkur upp úr 1920 og var eftir það í skjóli barna sinna.
Ottó Helgi Guðlaugsson
Ottó Helgi Guðlaugsson. Fæddur 19. apríl 1855. Dáinn 31.október 1924.
Foreldrar: Guðlaugur Hallgrímsson bóndi á Eyvindará á Flateyjardal, Suður-Þingeyjarsýslu, og kona hans Lilja Bjarnadóttir.
Kona: 30. nóvember 1882, Jóhanna Þuríður Halldórsdóttir. Þau slitu samvistir 1889.
Barn: Lilja Ottósdóttir, fædd 6. nóvember 1883, dó þriggja ára.
Ráðskona Ottós var: Halldóra, fædd 5. september 1863, Sigurðardóttir, Jónssonar bónda á Kvíavöllum í Útskálasókn.
Börn: Jón Ottósson, fæddur 14. júní 1891, lengst búsettur á Hólmavík, átti Maríu Bjarnadóttur frá Bólstað í Steingrímsfirði. Einar (skrifar sig Helgason) fæddur 14. ágúst 1893, sjómaður í Reykjavík. Björg Margrét Ottósdóttir, fædd 18. nóvember 1895, húsfreyja á Akureyri. Guðrún Ottósdóttir, fædd 14. desember 1899, átti Hjört Guðjón Samsonarsonar bónda í Sunndal í Bjarnarfirði á Ströndum. Hallgrímur Ottósson, fæddur 22. júlí 1905, sjómaður á Bíldudal.
Ottó bjó í Reykjavík 1882-89. Þaðan flutti hann suður í Útskálasókn og var bóndi á Fitjum 1892-95. Fluttist þaðan vestur að Ísafjarðardjúpi. Var á Bæjum á Snæfjallaströnd 1899 og þar i sveit til 1903, að hann kom að Glúmsstöðum í Fljóti og var þar í eitt ár. Bóndi í Kjaransvík 1904-06. Búsettur í Bolungarvík 1906-17. Hann mun þá hafa flutzt norður í Fnjóskadal, en hann dó í Stærra-Árskógi í Eyjafirði.
Guðmundur Þorvaldsson
Guðmundur Þorvaldsson. F. 16. júní 1844. D. 4. ágúst 1925.
Foreldar: Þorvaldur Jónsson bóndi á Hrafnfjarðareyri og kona hans Kristín Sigurðardóttir.
Kona: Svanborg, f. 6. ágúst 1846, d. 27. nóv. 1931, Rósinkarsdóttir, Bjarnasonar bónda á Steinólfsstöðum.
Börn: Bæring Guðmundsson bóndi á Álfsstöðum, varð úti ásamt öðrum manni á Skorarheiði 30. jan. 1903. Þorbjörn Guðmundsson húsmaður í Kjaransvík. Fósturbörn þeirra hjóna voru Vagn Jónatan Jónsson húsmaður á Látrum og Hansína Bæringsdóttir sonardóttir þeirra, átti Jónas Finnbogason bónda í Bolungarvík á Ströndum.
Guðmundur bjó fyrst á Nesi í Grunnavík, síðar á Sútarabúðum og Álfsstöðum. Bóndi í Kjaransvík 1903-1921. Húsmaður á Látrum frá 1921 til æviloka. Guðmundur var seinasti ábúandinn í Kjaransvík.
Þorbjörn Guðmundsson
Þorbjörn Guðmundsson. Fæddur 15. október 1882. Dáinn 1. desember 1927.
Foreldrar: Guðmundur Þorvaldsson, þá bóndi á Sútarabúðum, og kona hans Svanborg Rósinkarsdóttir.
Kona: 10. september 1904, Guðrún Albertína Jensdóttir, fædd 22. nóvember 1880, dáin 18. desember 1920.
Börn: Bæring Þorbjörn Þorbjörnsson sjómaður á Ísafirði, kvæntur Ólöfu Jakbosdóttur. Jón Þorbjörnsson, húsmaður á Horni. Guðmundur Þorbjörnsson, fæddur 8. júni 1906, sjómaður. Stefán Pétur Þorbjörnsson, fæddur 12. janúar 1910, ráðsmaður Jóhönnu Hallvarðsdóttur á Horni. Sigríður Bjargey Þorbjörnsdóttir, fædd 18. maí 1915. Friðrika Betúelína Þorbjörnsdóttir, fædd 14. júní 1918, átti Sigurbjörn Guðlaug Einarsson.
Þorbjörn var bóndi í Steig í Jökulfjörðum, bjó nokkur ár í Bolunarvík. Húsmaður í Kjaransvík 1912-1919. Bóndi á Steinólfsstöðum 1919-20. Fluttist síðar vestur í Barðarstrandasýslu og andaðist í Fjarðarhorni í Gufudalssveit.