Munur á milli breytinga „Sigurður Þorsteinsson, Horni“
Jump to navigation
Jump to search
Lína 8: | Lína 8: | ||
Sigurður Þorsteinsson var vinnumaður í [[Höfn]] 1801, húsmaður eða vinnumaður á [[Staður í Aðalvík|Stað]] í Aðalvík 1802. Var á [[Hrafnfjarðareyri]] 1808, en vinnumaður á [[Horn|Horni]] 1816 og líklega húsmaður þar síðar. Sigurður var lengi sjúklingur á sveit, mun hafa orðið holdsveikur. Kona hans var lengi vinnukona í [[Þverdalur|Þverdal]] og víðar. | Sigurður Þorsteinsson var vinnumaður í [[Höfn]] 1801, húsmaður eða vinnumaður á [[Staður í Aðalvík|Stað]] í Aðalvík 1802. Var á [[Hrafnfjarðareyri]] 1808, en vinnumaður á [[Horn|Horni]] 1816 og líklega húsmaður þar síðar. Sigurður var lengi sjúklingur á sveit, mun hafa orðið holdsveikur. Kona hans var lengi vinnukona í [[Þverdalur|Þverdal]] og víðar. | ||
+ | |||
+ | <noinclude>[[Category:Fólk í Sléttuhreppi]]</noinclude> |
Útgáfa síðunnar 17. september 2011 kl. 18:55
Sigurður Þorsteinsson. F. um 1772. D. 1845 (jarðs. 8. júní það ár).
Sigurður er sagður fæddur í Hælavík, en hverjir foreldrar hans hafa verið, verður ekki sagt með neinni vissu.
Kona: 1802, Anna Snorradóttir úr Höfn, d. 25. júlí 1841.
Börn: Eldjárn Sigurðsson húsmaður í Hlöðuvík og síðar bóndi í Grunnavíkurhreppi, Hjálmar Sigurðsson, d. 26. ágúst 1839, var vinnumaður á Stað í Aðalvík, átti Rósu Bjarnardóttur.
Sigurður Þorsteinsson var vinnumaður í Höfn 1801, húsmaður eða vinnumaður á Stað í Aðalvík 1802. Var á Hrafnfjarðareyri 1808, en vinnumaður á Horni 1816 og líklega húsmaður þar síðar. Sigurður var lengi sjúklingur á sveit, mun hafa orðið holdsveikur. Kona hans var lengi vinnukona í Þverdal og víðar.