Þverdalur

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search

Ábúendur

Jón Svarthöfðason

Jón Svarthöfðason. Fæddur um 1649. Var á lífi 1710.

Jón mun hafa verið bróðir þeirra Odds Svarthöfðasonar á Sléttu, Bjarna á Læk og Gunnars í Stakkadal.

Kona: Rannveig Björnsdóttir, fædd um 1666.

Börn: Jósef Jósefsson bóndi á Sléttu. Oddur Jónsson bóndi í Þverdal og á Sléttu. Jón Jónsson, Vigdís Jónsdóttir og Halldóra Jónsdótir.

Jón Svarthöfðason bjó í Þverdal 1703, en bjó á Stað 1710 á móti séra Einari Ólafssyni og hafði þriðjung jarðarinnar til ábúðar.


Ingunn Jónsdóttir

Ingunn Jónsdóttir. Fædd um 1648. Dánarár ókunnugt. Ingunn hefur átt mann þann, er Þorleifur hét. Hún bjó ekkja í Þverdal 1703. Synir hennar voru þeir Bjarni og Tómas, sem báðir bjuggu í Þverdal. Dóttir hennar var Kristín Þorleifsdóttir, Þverdal.

Bjarni Þorleifsson

Bjarni Þorleifsson, Þverdal

Jón Ingimundarson

Jón Ingimundarson, Þverdal

Tómas Leifsson

Tómas Leifsson, Þverdal

Ísleikur Eiríksson

Ísleikur Eiríksson, Þverdal

Einar Guðmundsson

Einar Guðmundsson, Þverdal

Oddur Jónsson

Oddur Jónsson, Þverdal

Guðlaugur Jónsson

Guðlaugur Jónsson, Þverdal

Jón Jósefsson

Jón Jósefsson, Þverdal

Gunnvör Magnúsdóttir

Gunnvör Magnúsdóttir, Þverdal

Þorkell Þorkelsson

Þorkell Þorkelsson, Sléttu

Einar Einarsson

Einar Einarsson, Læk

Guðmundur Halldórsson

Guðmundur Halldórsson, Þverdal

Guðmundur Guðmundsson

Guðmundur Guðmundsson, Þverdal

Árni Gíslason

Árni Gíslason, Stakkadal

Einar Einarsson

Einar Einarsson, Þverdal

Mahalaleel Árnason

Mahalaleel Árnason, Þverdal

Mikael Björnsson

Mikael Björnsson. F. um 1722. D. 19. júní 1840.

Foreldrar: Björn Jónsson bóndi í Neðri-Miðvík, síðast í Görðum og kona hans Hildur Ólafsdóttir.

Börn: Rósinkar Mikaelsson bóndi í Kjaransvík. Engilbert Mikaelsson bóndi á Glúmsstöðum. Engilbjörg Mikaelsdóttir, átti Brynjólfur Brynjólfsson í Kjaransvík. Þorsteinn Mikaelsson bóndi í Efri-Miðvík.

Mikael var bóndi í Þverdal 1803-12. Bóndi í Hælavík 1816. Bóndi og húsmaður í Kjaransvík 1820-40.


Halldór Guðmundsson

Halldór Guðmundsson, Tungu

Jón Sturluson

Jón Sturluson. Fæddur 1782. Dáinn 10. marz 1839.

Foreldrar: Sturla Sturluson síðast bóndi í Þjóðólfstungu í Bolungarvík og fyrri kona hans Ingibjörg Bárðardóttir. Sjá Arnardalsætt.

Kona 1: Katrín, fædd um 1776, dáin 28. marz 1820, Guðmundsdóttir prests, Sigurðssonar á Stað í Aðalvík.

Börn Ingibjörg Jónsdóttir, átti fyrr Jón Þórarinsson vinnumann í Vigur. Hann drukknaði. Seinni maður Ingibjargar var Jónas Jónasson borgari og beykir á Ísafirði. Guðmundur Jónsson bóndi á Hesteyri.

Kona 2: 15. júlí 1821, Sigurborg, fædd 1789, dáin 6. júlí 1862, Guðmundsdóttir Guðmundssonar bónda í Þverdal. Hún átti áður Halldór Bjarnason hreppsjóra á Látrum og var seinni kona hans.

Börn: Hjálmar Jónsson bóndi á Látrum. Halldór Jónsson, fæddur 29. júlí 1823, dáinn 23. desember 1906, smáskammtalæknir á Sútarabúðum í Grunnavík, átti Sæunni dóttur séra Hannesar Arnórssonar á Stað í Grunnavík. Guðmundur Jónsson, fæddur 1826, átti Sigríði Halldórsdóttur. Hann var formaður á sexæring úr Bolunargvík og drukknaði þaðan 30. apríl 1854. Ari Jónsson, fæddur 10. marz 1831, dáinn 14. febrúar 1912, var í Hörgshlíð, átti Sigríði Halldórsdóttur ekkju Guðmundar bróður síns. Jón Jónsson fæddur 4. janúar 1830, var í Þverdal 1842.

Jón Sturluson var bóndi á Stað í Aðalvík 1804-1812. Bóndi í Þverdal 1812-20. Bóndi á Sléttu 1820-26. Bóndi í Þverdal frá 1826 til æviloka. Ekkja hans bjó í Þverdal til 1843, en fluttist þá að Stað og var búsett þar næstu ár. Hún mun svo hafa flutzt til Halldórs sonar síns.

Jón Sturluson var hreppstjóri frá 1828 til dánardags.


Bjarni Brandsson

Bjarni Brandsson, Þverdal

Sigurður Jónsson

Sigurður Jónsson, Sléttu

Sigurður Guðmundsson

Sigurður Guðmundsson. Fæddur um 1781. Var á lífi 1811, en dáinn 1816.

Foreldrar: Séra Guðmundur Sigurðsson á Stað í Aðalvík og kona hans Ingibjörg Vernharðsdóttir.

Kona: 1804, Álfheiður, fædd um 1780, dáin 6. september 1840, Bjarnadóttir, Jónssonar bónda á Marðareyri.

Barn: Guðmundur Sigurðsson, fæddur 1806, dáinn 31. júlí 1841, bóndi á Steinólfsstöðum í Jökulfjörðum.

Sigurður Guðmundsson bjó á Stað 1805. Bóndi á Hesteyri 1810-11. Ekki er vitað hvenær hann fluttist að Hesteyri.


Oddur Jónsson

Oddur Jónsson, Þverdal

Guðmundur Jónsson

Guðmundur Jónsson, Hesteyri

Gísli Halldórsson

Gísli Halldórsson, Þverdal

Guðmundur Sigurðsson

Guðmundur Sigurðsson, Stað

Borgar Jónsson

Borgar Jónsson, Þverdal

Árni Sigurðsson

Árni Sigurðsson, Þverdal

Baldvin Þorsteinsson

Baldvin Þorsteinsson, Þverdal

Bárður Kristján Guðmundsson

Bárður Kristján Guðmundsson. Fæddur 27. desember 1867. Dáinn 28. maí 1919.

Foreldrar: Guðmundur Jónsson og Sigríður Jónsdóttir, Hesteyri, ógift vinnuhjú á Sléttu. Þau giftust síðar og bjuggu síðar Langavelli á Hesteyri. Bárður var af ýmsum talinn sonur Hermanns Sigurðssonar á Sléttu.

Kona 1: 6. janúar 1894, Júdit, fædd 26. ágúst 1866, dáin 19. apríl 1898, Þorsteinsdóttir, Bjarnasonar í Efri-Miðvík.

Börn: Klemens Kristján Kristjánsson, fæddur 14. maí 1895, kornræktarstjóri, kvæntur Ragnheiði Nikulásdóttur. Önnur börn þeirra dóu ung.

Kona 2: Guðrún Vigdís, fædd 12. janúar 1966, dáin 10. september 1946, Guðmundsdóttir, Gíslasonar á Ánanaustum í Reykavík.

Barn: Sverrir Kristjánsson, fæddur 7. febrúar 1908, sagnfræðingur í Reyjavík, kvæntur Bínu Kristjánson kennara.

Barn Bárðar Kristjáns með Sigríði Ísleifsdóttur, Amalía Ingibjörg, fædd 7. október 1898, húsfreyja í Reykjavík.

Barn með Guðfinnu Andrésdóttur, þá vinnukonu í Bræðratungu í Biskupstungum, Þórunn, fædd 22. febrúar 1905.

Báðrur Kristján Guðmundsson var búfræðingur frá Ólafsdal, gáfaður og stórhuga, en skorti fé til framkvæmda. Hann stofnaði búnaðarfélag í Sléttuhreppi og hugði á félagasamtök og framkvæmdir. Hann bjó í Þverdal 1895-96. Bóndi í Kjaransvík 1896-98, þar missti hann fyrri konu sína. Hann reisti sér timburhús á Hesteyri og mun hafa hugað þar á verzlun, en lenti þar í húsbruna. Eftir það var hann lengst búsettur í Reykjavík.

Jóhann Jóhannsson

Jóhann Jóhannsson, Þverdal

Jón Hálfdán Guðmundsson

Jón Hálfdán Guðmundsson, Þverdal

Friðrik Kristjánsson

Friðrik Kristjánsson, Þverdal

Bjarni Þorsteinsson

Bjarni Þorsteinsson, Neðri-Miðvík

Sigurður Jónatansson

Sigurður Jónatansson, Þverdal

Guðbrandur Einarsson

Guðbrandur Einarsson, Þverdal

Híram Jónsson

Híram Jónsson, Görðum

Herborg Kjartansdóttir

Herborg Kjartansdóttir. Fædd 10. október 1851. Dáin 14. maí 1932.


Hún bjó með sonum sínum í Þverdal 1912-20. Marías sonur hennar mun hafa talizt fyrir búi hjá henni 1918-20. Sjá Efri-Miðvík.


Jón Kristjánsson

Jón Kristjánsson. Fæddur 22. september 1890.

Foreldrar: Kristján Jónsson bóndi í Neðri Miðvík og kona hans Kristín Sigurðardóttir. Ólst upp hjá Borgari Jónssyni í Þverdal.

Kona: 5. nóvember 1927, Þorbjörg, fædd 18. apríl 1894, dáin 29. maí 1968, Valdimarsdóttir, Þorvarðssonar kaupmanns og útgerðarmanns í Hnífsdal.

Börn: Þorvarður Björn Jónsson, fæddur 16. október 1928, rafmagnsverkfræðingur í Reykjavík, kvæntur Unni Ósk Jónsdóttur. Borghildur Guðrún Jónsdóttir, fædd 4. marz 1931, kennari. Valdimar Kristján Jónsson, fæddur 20. ágúst 1934, doktor í verkfræði og stæðrfræði, háskólakennari í London, kvæntur Guðrúnu Sigmundsdóttur. Jón Albert Jónsson, fæddur 21. september 1936, kvæntur Maríu Óskarsdóttur.

Jón Kristjánsson var bóndi í Þverdal 1920-22, þá ókvæntur. Hann lærði trésmíðar. Trésmíðameistari á Ísafirði og síðar í Reykjavík.


Guðmundur Snorri Finnbogason

Guðmundur Snorri Finnbogason, Þverdal

Guðni Ísleifsson

Guðni Ísleifsson, Þverdal

Halldór Benedikt Marteinn Guðnason

Halldór Benedikt Marteinn Guðnason.

Benedikt Árnason

Benedikt Árnason, Tungu

Jóhann Ísleifsson

Jóhann Ísleifsson, Sæból

Jón Magnússon

Jón Magnússon. Fæddur 22. júlí 1904.

Foreldrar: Séra Runólfur Magnússon Jónsson prestur á Tjörn á Vatnsnesi, síðar prestur á Stað í Aðalvik, og fyrri kona hans Guðný Benediktsdóttir.

Kona: 13. nóvember 1929. Dóróthea Margrét, fædd 30. júlí 1906, dáin 28. maí 1969, Magnúsdóttir, Dósþeussonar á Sæbóli.

Börn: Hreinn Þórir Jónsson, fæddur 4. október 1930, rafvirkjameistari á Ísafirði, kvæntur Kristínu Amalíu Einarsdóttur. Baldur Trausti Jónsson, fæddur 14. júní 1932, framkvæmdastjóri á Ísafirði, kvæntur Vígfúsínu Thorarensen Clausen Arinbjarnardóttur. Guðnúy Hrefna Jónsdótttir, fædd 27. júlí 1935, stúdent, gift Ólafi Guðmundssyni verkfræðing í Reykjavík.

Jón Magnússon var búfræðingur frá Hvanneyri. Hann var bóndi á Stað í Aðalvík 1925-32. Húsmaður í Þverdal 1932-37. Hann reisti nýbýlið Sæborg í Garðalandi og var bóndi þar 1937-48. Fluttist þaðan að Seljalandi í Skutulsfirði og síðar til Ísafjarðar.

Jón sat í hreppsnefnd og var oddviti um skeið, póstafgreiðsumaður og símstjóri 1939-48.

Árni Þorkelsson

Árni Þorkelsson, Látrum

Þorkell Óskar Árnason

Þorkell Óskar Árnason, Þverdal

Guðjón Þorsteinn Finnbogason

Guðjón Þorsteinn Finnbogason, Þverdal

Árni Finnbogason

Árni Finnbogason, Látrum

Þórarinn Elís Jónsson

Þórarinn Elís Jónsson, Þverdal

Markús Finnbjörnsson

Markús Finnbjörnsson, Sæból