Einar Bjarnason, Horni
Jump to navigation
Jump to search
Einar Bjarnason. F. um 1742. D. 2. júlí 1818. Ekki er vitað um foreldra hans.
Kona: Þórunn Markúsdóttir, f. um 1737 í Grunnavík.
Börn: Bjarni Einarsson, fæddur um 1772, dáinn 18. ágúst 1816, Oddgerður Einarsdóttir fædd um 1776.
Einar bjó í Kjaransvík frá því um 1770-1789. Bóndi á Horni frá 1789 til dánardags.
Um Einar er lítið vitað. Hann var einn þeirra bænda, sem hýsti strokufangann Hannes Grímsson 1785 og varð að greiða sekt fyrir.
Skv. manntali 1801 bjuggu einnig á Horni þær Rannveig Sigfúsdóttir, fædd 1777 dáin 1812, þjónustusúlka og Halldóra Einarsdóttir („gammel kone (vanför og nyder almisse af sognet)“).
Oddgerður finnst ekki í manntali 1816.