Kristján Hermannsson, Görðum
Jump to navigation
Jump to search
Kristján Hermannsson. Fæddur um 1786. Dáinn 26. ágúst 1811.
Foreldrar: Hermann Jónsson síðast bóndi í Görðum og seinni kona hans Ingibjörg Jónsdóttir.
Kona: Karítas, fædd um 1783, dáin 10. júlí 1862, Jónsdóttir, Gauðlaugssonar hreppstjóra í Neðri Miðvík. Hún átti síðar Árna Magnússon á Faxastöðum í Grunnavík. Þriðji maður hennar var Guðmundur Gíslason bóndi á Höðfa í Grunnavíkurhreppi. Þau Kristján og Karítas voru barnlaus.
Kristján mun hafa verið bóndi í Görðum frá 1806 til dánardags. Hann var einn þeirra bænda, sem fórust með séra Guðmundi Sigurðssyni á Stað í Aðalvík.