Kristján Hermannsson, Görðum

Úr Sléttuhreppur
Jump to navigation Jump to search

Kristján Hermannsson. Fæddur um 1786. Dáinn 26. ágúst 1811.

Foreldrar: Hermann Jónsson síðast bóndi í Görðum og seinni kona hans Ingibjörg Jónsdóttir.

Kona: Karítas, fædd um 1783, dáin 10. júlí 1862, Jónsdóttir, Guðlaugssonar hreppstjóra í Neðri Miðvík. Hún átti síðar Árna Magnússon á Faxastöðum í Grunnavík. Þriðji maður hennar var Guðmundur Gíslason bóndi á Höðfa í Grunnavíkurhreppi. Þau Kristján og Karítas voru barnlaus.

Kristján mun hafa verið bóndi í Görðum frá 1806 til dánardags. Hann var einn þeirra bænda, sem fórust með séra Guðmundi Sigurðssyni á Stað í Aðalvík.