Jón Þorkelsson, Atlastöðum
Útgáfa frá 10. nóvember 2012 kl. 16:42 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
Útgáfa frá 10. nóvember 2012 kl. 16:42 eftir Ingvi (Spjall | framlög) (Ný síða: <includeonly>Jón Þorkelsson, Atlastöðum</includeonly><noinclude>'''Jón Þorkelsson'''.</noinclude> F. um 1753. Var enn á lífi 1811, en dáinn 1816. Sonur [[Þorkell Þorkels...)
Jón Þorkelsson. F. um 1753. Var enn á lífi 1811, en dáinn 1816.
Sonur Þorkels Þorkelssonar á Sléttu.
Kona: Þóra Snorradóttir úr Höfn, d. 26. júní 1817.
Börn: Oddur Jónsson bóndi á Atlastöðum. Ragnheiður Jónsdóttir, átti Jón Jónsson bónda á Hesteyri. Þórður Jónsson húsmaður á Atlastöðum. Kristín Jónsdóttir, átti Sigurður Björnsson á Atlastöðum og Glúmsstöðum. Ólafur Jónsson bóndi í Hlöðuvík og á Atlastöðum. Þorgerður Jónsdóttir, átti Björn Guðmundsson bónda í Rekavík bak Látur.
Jón Þorkelsson bjó í Hlöðuvík 1780-88. Bóndi á Atlastöðum frá 1788 til dánardags. Í munnmælum sagður hraustmenni, þó ekki á við föður sinn. Virðist hafa verið vel metinn.