Atlastaðir

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search

Ábúendur

Jón Björnsson

Jón Björnsson. Fæddur um 1657. Dánarár ókunnugt.

Kona: Borghildur Jónsdóttir, fædd um 1654. Barnlaus.

Jón bjó á Atlastöðum 1703.


Sigurður Björnsson

Sigurður Björnsson. Fæddur um 1659. Dánarár ókunnugt.

Kona: Gunnhildur Oddsdóttir, fædd um 1653. (Ath. Sléttuhreppsbókin segir 1753)

Dætur þeirra hjóna: Ingibjörg Sigurðardóttir, fædd um 1692 og Helga Sigurðardóttir, fædd um 1693.

Sigurður var bóndi á Atlastöðum 1703.


Ásmundur Marteinsson

Ásmundur Marteinsson. Fæddur um 1640.

Hann var húsmaður á Atlastöðum 1703. Kona hans var Guðrún Guðmundsdóttir, fædd um 1659. Ekkert barn þeirra var hjá þeim.

Guðmundur Sigurðsson

Guðmundur Sigurðsson. Fæddur um 1637. Húsmaður á Atlastöðum 1703, ókvæntur og barnlaus.


Allt þetta fólk á Atlastöðum hverfur úr ábúendatölu í hreppnum. Ef til vill hefur eitthvað af því farizt í bólunni. Þegar jarðamatið fór fram 1710 voru allar þrjár jarðirnar í Fljóti, Atlastaðir, Tunga og Glúmsstaðir í eyði og þá örvænt um, að þær kæmust nokkurn tíma aftur í byggð. Ekki fór þó svo, en langt fram á 18. öld virðast þessar jarðir oftast hafa verið í eyði. Byggð mun þó hafa verið það við og við, en fá ár í einu. Í öllum bændatölum fram yfir 1762 eru þær sagðar í eyði. Á Atlastöðum verður fyrst aftur vitað um ábúanda þar með nafni árið 1788.

Jón Þorkelsson

Jón Þorkelsson. F. um 1753. Var enn á lífi 1811, en dáinn 1816.

Sonur Þorkels Þorkelssonar á Sléttu.

Kona: Þóra Snorradóttir úr Höfn, d. 26. júní 1817.

Börn: Oddur Jónsson bóndi á Atlastöðum. Ragnheiður Jónsdóttir, átti Jón Jónsson bónda á Hesteyri. Þórður Jónsson húsmaður á Atlastöðum. Kristín Jónsdóttir, átti Sigurður Björnsson á Atlastöðum og Glúmsstöðum. Ólafur Jónsson bóndi í Hlöðuvík og á Atlastöðum. Þorgerður Jónsdóttir, átti Björn Guðmundsson bónda í Rekavík bak Látur.

Jón Þorkelsson bjó í Hlöðuvík 1780-88. Bóndi á Atlastöðum frá 1788 til dánardags. Í munnmælum sagður hraustmenni, þó ekki á við föður sinn. Virðist hafa verið vel metinn.


Oddur Jónsson

Oddur Jónsson. Fæddur um 1780. Dáinn 17. október 1846.

Foreldrar: Jón Þorkelsson bóndi í Hlöðuvík, síðar á Atlastöðum, og kona hans Þóra Snorradóttir.

Kona: Guðrún, fædd 1786, dáin 4. júlí 1858, Þorkelsdóttir, Jónssonar á Gelti í Súgandafirði.

Börn: Veronika Oddsdóttir, átti fyrr Dósóþeus Halldórsson á Atlastöðum, síðar Hermann Sigurðsson hreppstjóra á Sléttu. Þorgerður Oddsdóttir, átti Jón Þorsteinsson á Atlastöðum. Sigríður Oddsdóttir, átti séra Jón Eyjólfsson á Stað í Aðalvík.

Oddur Jónsson mun hafa verið búsettur í Súgandafirði fyrstu árin eftir hann kvæntist. Bóndi á Atlastöðum frá 1811 til dánardags. Oddur var smiður góður og oddhagur vel, var frægur fyrir askasmíðar og stundum kallaður Oddur askasmiður. Hann var vel metinn.

Þorsteinn Teitsson

Þorsteinn Teitsson, Sæbóli

Þórður Jónsson

Þórður Jónsson. Fæddur 1780. Dáinn 7. mars 1823.

Foreldrar: Jón Þorkelsson bóndi í Hlöðuvík, síðar á Atlastöðum, og kona hans Þóra Snorradóttir.

Kona: 10. ágúst 1822, Soffia Mahalalellsdóttir, Árnasonar í Þverdal. Hún átti síðar Ásgeir Halldórsson á Glúmsstöðum.

Barn: Þóra Þórðardóttir, fædd 1823, dáin 4. júní 1887, giftist ekki, en dóttir hennar með Pétri Þorsteinssyni vinnumanni í Höfn var Guðfinna Pétursdóttir.

Þórður Jónsson var húsmaður á Atlastöðum 1823-24. „Deyði hastarlega á víðavangi“, segir í kirkjubókinni.


Dósóþeus Halldórsson

Dósóþeus Halldórsson, Atlastöðum

Ólafur Jónsson

Ólafur Jónsson. F. um 1791. D. 13. nóvember 1855.

Foreldrar: Jón Þorkelsson bóndi á Atlastöðum og kona hans Þóra Snorradóttir.

Kona: Soffía, f. 1793, d. 22. marz 1859, Jónsdóttir, EInarssonar á Steinólfsstöðum og seinni konu hans, Guðrúnar Lárentíusdóttur. Hún var dóttir Lárentíusar Erlendssonar sýslumanns Ólafssonar. Soffía var hagmælt, og geymast enn í minni nokkrar vísur hennar.

Börn: Sveinn Ólafsson, dó ókvæntur 1866. Kjartan Ólafsson bóndi á Atlastöðum. Kári Ólafsson, d. 23. des. 1876, ókvæntur, átti son með Herborgu Friðriksdóttur í N. miðvík, Þórð Kárason á Látrum. Karólína Ólafsdóttir, átti fyrr Þeófílusson á Látrum, síðar Ísleif Ísleifsson í Hlöðuvík. Dóttir Ólafs með Ástríði Jónsdóttur, systur konu hans, var Guðrún Ólafsdóttir kona Jósefs Hjálmarssonar á Atlastöðum.

Ólafur bjó með móður sinni á Atlastöðum 1816. Bóndi í Rekavík bak Látur 1823-25. Bóndi á Atlastöðum 1825-30. Bóndi í Hlöðuvík 1830-45. Bóndi á Atlastöðum frá 1845 til æviloka.


Jón Þorsteinsson

Jón Þorsteinsson, Atlastöðum

Þorsteinn Snæbjörnsson

Þorsteinn Snæbjörnsson, Atlastöðum

Guðmundur Þeófílusson

Guðmundur Þeófílusson, Atlastöðum

Kjartan Ólafsson

Kjartan Ólafsson, Atlastöðum

Kristján Halldórsson

Kristján Halldórsson, Tungu

Jósef Hjálmarsson

Jósef Hjálmarsson. F. 4. janúar 1835. D. 29. júní 1904.

Foreldrar: Hjálmar Jóhannsson bóndi í Höfn og kona hans Solveig Jónsdóttir, Höfn.

Kona: 17. apríl 1859, Guðrún, f. 5. apríl 1822, d. 29. janúar 1901, Ólafsdóttir, Jónssonar á Atlastöðum.

Börn: Margrét Jósefsdóttir dó ung og ógift. Ingibjörg Jósefsdóttir, Atlastöðum, f. 21. sept. 1864, d. 21. febrúar 1948, ógift, ljósmóðir í Sléttuhreppi í tugi ára.

Jósef var húsmaður í Tungu 1859-62. Bóndi í Rekavík bak Höfn 1864. Bóndi á Atlastöðum 1870-1900, líklega húsmaður síðustu árin. Jósef var afburða bjargmaður. Hann seig fyrstur manna fyrir fugl í Festarskörð, heiðnaberg Hælavíkurbjargs.


Þeófílus Þeófílusson

Þeófílus Þeófílusson, Látrum

Betúel Jónsson

Betúel Jónsson, Tungu

Guðni Jósteinsson

Guðni Jósteinsson, Atlastöðum

Hjálmar Kristjánsson

Hjálmar Kristjánsson, Glúmsstöðum

Jón Hjálmarsson

Jón Hjálmarsson, Látrum

Guðmundur Þeófílusson

Guðmundur Þeófílusson. Fæddur 8. september 1869. Dáinn 24. marz 1917.

Foreldrar: Þeófílus Þeófílusson, bóndi á Látrum og kona hans Sigurlína Jóakímsdóttir, Látrum.

Kona: 1899: Ketilríður Guðrún, fædd 10. september 1879, dáin 29. júlí 1959, Veturliðadóttir, Vagnssonar á Dynjanda.

Börn: Veturliði Jakob Guðmundsson bóndi á Hesteyri. Bjarni Guðmundsson, fæddur 26. júlí 1900, verkstjóri í Reykjavík, kvæntur Svanhild Vatle, norskri konu. Margrét Guðmundsdóttir fædd 29. maí 1904. Sigurlína Guðmundsdóttir, átti Sölva Þórbergsson bónda í Efri Miðvík. Ólafur Helgi Guðmundsson fæddur 5. marz 1906, dáinn 15. ágúst 1956, ókvæntur. Jóna Sigurveig Guðmundsdóttir, fædd 11. janúar 1911, kona Guðmundar Þorgeirssonar sjómanns í Hafnarfirði. Mikael Guðmundsson, fæddur 13. maí 1917, sjómaður ókvæntur. Guðmundur Elías Guðmundsson (Mummi), fæddur 16. maí 1917, kvæntur Lilju Halldórsdóttur frá Ísafirði, búsett á Ísafirði.

Guðmundur Þeófílusson bjó á Atlastöðum 1901-2. Bóndi á Nesi í Grunnavík 1902-1904, fluttist þaðan á Hesteyri og bjó þar til dánardags. Hann féll af vélbáti á Látralagi og drukknaði þar. Ekkja hans bjó áfram á Hesteyri til 1943, að hún fluttist til Ísafjarðar.


Híram Jónsson

Híram Jónsson, Görðum

Geirmundur Guðmundsson

Geirmundur Guðmundsson, Atlastöðum

Júlíus Geirmundsson

Júlíus Geirmundsson, Atlastöðum

Jósef Hermannsson

Jósef Hermannsson, Atlastöðum

Hermann Friðriksson

Hermann Friðriksson, Atlastöðum

Hermann Vernharður Jósefsson

Hermann Vernharður Jósefsson, Tungu

Högni Sturluson

Högni Sturluson, Atlastöðum

Geirmundur Júlíusson

Geirmundr Júlíusson, Látrum

Finnbogi Rútur Jósefsson

Finnbogi Rútur Jósefsson, Atlastöðum