Efri Miðvík

Úr Sléttuhreppur
Útgáfa frá 3. maí 2025 kl. 11:29 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 3. maí 2025 kl. 11:29 eftir Ingvi (Spjall | framlög) (Ný síða: ===Ábúendur=== ===Eiríkur Jónsson=== {{:Eiríkur Jónsson, Efri Miðvík}} ===Valdimar Þorbergsson=== {{:Valdimar Þorbergsson}})
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Ábúendur

Eiríkur Jónsson

Eiríkur Jónsson. Fæddur um 1666. Dánarár ókunnugt. Hann hefur líklega verið sonur Jóns Guðmundssonar, sem bjó Efri Miðvík 1661.

Kona Eiríks var Hallbjörg Jónsdóttir, fædd um 1665.

Börn: Ástríður Eiríksdóttir, f. 1694, Guðrún Eiríksdóttir, f. 1697. Halldóra Eiríksdóttir, f. 1699, Margrét Eiríksdóttir, f. 1701, Kristin Eiríksdóttir, f. 1703.

Eiríkur bjó í Efri Miðvík 1703, en eftir það er ekki um hann vitað.



Valdimar Þorbergsson

Valdimar Þorbergsson. Fæddur 14. nóvember 1906.

Foreldrar: Þorbergur Jónsson bóndi í Efri Miðvík og seinni kona hans Oddný Finnbogadóttir.

Kona 26. marz 1932, Ingibjörg, f. 19. sept. 1908, Bjarnadóttir, Bjarnasonar úr Flatey, þá búsettur í Búðardal, Dalasýslu.

Börn: Héðinn Breiðfjörð Valdimarsson, f. 27. febr. 1933, stýrimaður á Ísafirði, ókv. Birgir Breiðfjörð Valdimarsson, f. 30. júlí 1934, flugumferðarstjóri á Ísafirði, kvæntur Maríu Erlu Eiríksdóttur úr Keflavík. Birna Unnur Valdimarsdóttir, f. 28. febrúar 1936, kona Heiðars Guõmundssonar rafvirkjameistara á Ísafirði.

Valdimar Þorbergsson var bóndi í Efri Miðvík 1935-44. Bóndi á Sæbóli 1944-47. Þaðan fluttist Valdimar til Ísafjarðar. Efri Miðvík fór í eyði við burtflutning þeirra bræðra, Sölva og Finnbjarnar Þorbergssonar.