Jón Björnsson, Kjaransvík
Útgáfa frá 9. júní 2025 kl. 17:17 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
Útgáfa frá 9. júní 2025 kl. 17:17 eftir Ingvi (Spjall | framlög) (Ný síða: Jón Björnsson. Fæddur 26. janúar 1844. Dáinn 17. apríl 1894. Foreldrar: Björn Markússon og Guðrún Þór...)
Jón Björnsson. Fæddur 26. janúar 1844. Dáinn 17. apríl 1894.
Foreldrar: Björn Markússon og Guðrún Þórðardóttir vinnuhjú á Hesteyri.
Kona: Ingveldur, fædd 1829, dáin 16. febrúar 1907, Jónsdóttir, Jónssonar húsmanns á Fossi í Otradalssókn í Arnarfirði.
Börn: Guðjón Jónsson húsmaður í Kjaransvík og Rekavík bak Höfn. Margrét Jónsdóttir, giftist ekki, var síðast vinnukona í Rekavík bak Höfn.
Jón Björnsson var vinnumaður á Ísafirði, kvæntist þar og kom þaðan aftur 1869. Hann var fyrst húsmaður í Efri-Miðvík og á Hesteyri. Bóndi í Kjaransvík frá 1887 til dánardags.