Bjarni Bjarnason, Sæból

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 7. ágúst 2025 kl. 20:03 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 7. ágúst 2025 kl. 20:03 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Bjarni Bjarnason. Fæddur um 1707. Var á lífi 1775.

Ekki verður með vissu sagt, hverra manna Bjarni var. Hann gæti hafa verið sonur Bjarna Jónssonar í Görðum. Er það að ýmsu leiti líklegt. Bjarni bjó í Görðum 1735, en mun hafa verið kominn að Sæbóli 1744 og bjó þar síðan. Í bændatalinu 1762 er hann sagður 55 ára og virðist þá vera ókvæntur.

Bjarni hefur verið helsti forráðamaður sveitarinnar um alllangt skeið. Hann var orðinn hreppstjóri 1756, eða fyrr, og var það enn 1775. Hann hefur verið allvel efnaður og notið álits.