Oddur Jónsson, Atlastöðum

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 12. ágúst 2025 kl. 19:29 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 12. ágúst 2025 kl. 19:29 eftir Ingvi (Spjall | framlög) (Ný síða: Oddur Jónsson. Fæddur um 1780. Dáinn 17. október 1846. Foreldrar: Jón Þorkelsson bóndi í Hlöðuvík, s...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Oddur Jónsson. Fæddur um 1780. Dáinn 17. október 1846.

Foreldrar: Jón Þorkelsson bóndi í Hlöðuvík, síðar á Atlastöðum, og kona hans Þóra Snorradóttir.

Kona: Guðrún, fædd 1786, dáin 4. júlí 1858, Þorkelsdóttir, Jónssonar á Gelti í Súgandafirði.

Börn: Veronika Oddsdóttir, átti fyrr Dósóþeus Halldórsson á Atlastöðum, síðar Hermann Sigurðsson hreppstjóra á Sléttu. Þorgerður Oddsdóttir, átti Jón Þorsteinsson á Atlastöðum. Sigríður Oddsdóttir, átti séra Jón Eyjólfsson á Stað í Aðalvík.

Oddur Jónsson mun hafa verið búsettur í Súgandafirði fyrstu árin eftir hann kvæntist. Bóndi á Atlastöðum frá 1811 til dánardags. Oddur var smiður góður og oddhagur vel, var frægur fyrir askasmíðar og stundum kallaður Oddur askasmiður. Hann var vel metinn.