Rekavík bak Látrar

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 12. júní 2026 kl. 16:58 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2026 kl. 16:58 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
Jump to navigation Jump to search

Fyrir utan Tungu er fjallshyrnan Kóngar (366 m), utan þeirra eru nokkrir litlir dalir upp í fjallgarðinn, er nefnast Hvestudalir. Upp og vestur af þeim gnæfir fjallið Hvesta (513 m). Heldur hún að Fljótavík að sunnan. Frá Hvestu inn að Tröllaskarði er fjallgarður, sem nefnist einu nafni Kjölur. Upp á hann er farið úr Tungudal, og er sú leið, til Látra og Rekavíkur, oft nefnd Tunguheiði. Vestan við Hvestu er lítil vík, Rekavík bak Látur. Vestan hennar skagar Straumnes útnorður í haf. Straumnes er í rauninni gríðarstórt fjall: Yzt norðaustan á því er fjallið nefnt Skorar (435 m), og halda þær að Rekavík að vestan. Innan við Skorar er dalur, sem nefnist Öldu- dalur. Neðst í honum, vestan til við botn víkurinnar, er bærinn Rekavík. Bæjarfjall (430 m) tekur við fyrir innan Öldudal, þá er Grasdalur og innan við hann Grasdalsfjall. Innan þess opnast sjálf Aðalvík, enda er þá skammt til Látra.

Undirlendi Rekavíkur er að mestu hulið af allstóru vatni, Reka- víkurvatni (2-3 km²). Milli vatns og sjávar er mjór malarkambur. Innst í víkinni er annað vatn lítið, Hálsavatn. Hár malarkambur, að mestu þakinn gróðri, er milli vatnanna og nefnist Skammárholt, en Skammá rennur gegnum hann úr Hálsavatni í Rekavíkurvatn. Með- fram vatninu og víkinni að vestan er allmikið graslendi, en nær ekkert að austan, þar liggja hlíðar Hvestu niður í vatnið, snarbrattar og gróðurlausar. Bandaríska herliðið lét leggja akfæran veg frá Látrum að Rekavík, og af honum liggur akvegur upp úr Grasdal upp á Straumnesfjall. Þetta er eina akfæra bæjarleiðin í hreppnum.

Rekavíkur veit ég fyrst getið í rekaskrá Vatnsfjarðarkirkju 1327. Þar segir, að Vatnsfjarðarkirkja eigi „siettungh i ollum Reka j Rekavik a bak laatrum". Sama er sagt i Vilkinsmáldaga 1397. Í sálugjafabréfi Björns Einarssonar Jórsalafara frá 25. júlí 1405 getur þess, að Björn gefi ma. til legstaðar sér Vatnsfjarðarkirkju


Ábúendur

Jón Guðlaugsson

Jón Guðlaugsson, Rekavík bak Látur

Bjarni Gíslason

Bjarni Gíslason, Rekavík bak Látur

Kolbeinn Jónsson

Kolbeinn Jónsson, Rekavík bak Látur

Þorsteinn Einarsson

Þorsteinn Einarsson, Rekavík bak Látur

Jón Guðmundsson

Jón Guðmundsson, Rekavík bak Látur

Þuríður Sigurðardóttir

Þuríður Sigurðardóttir. F. um 1736. Var á lífi 1801.

Hún hefur líklega verið dóttir Sigurðar Eldjárnssonar í Efri-Miðvík. Giftist ekki. Hún bjó í Rekavík 1786-89. Bjó í Hlöðuvík 1789-91, Sléttu 1791-92, var búlaus 1792-93. Bjó aftur í Hlöðuvík 1793-93. Hún var í Kjaransvík 1801 og þá orðin sveitlæg.


Árni Jónsson

Árni Jónsson, Látrum

Ásmundur Árnason

Ásmundur Árnason, Rekavík bak Látur