Egedíus Jónsson, Efri Miðvík

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 17. júlí 2026 kl. 21:44 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2026 kl. 21:44 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Egedíus Jónsson. Fæddur um 1762. (Ef til vill á Egedíus-messu 1. sept). Dáinn 13. október 1809.

Hann mun hafa verið aðfluttur og er ókunnugt um ætt hans.

Kona: 1792, Þórdís Árnadóttir, líklega dóttir Árna Jónssonar á Látrum og systir Ásmundar Ārnasonar.

Börn: Þórdís Egedíusdóttir, fyrri kona Bjarna Þorsteinssonar á Langavelli á Hesteyri. Guðlaugur Egedíusson. Óvíst hvað um hann varð. Jón Egedíusson, kvæntist ekki, var vinnumaður víða í Sléttuhreppi.

Egedíus Jónsson bjó á Sæbóli 1794. Bóndi á Sléttu 1795. Bóndi í Efri Miðvík 1796-1801. Var ekki talinn meðal bænda í hreppnum 1805.