Einar Sigurðsson, Horni
Einar Sigurðsson. F. 1800. D. 4. janúar 1854.
Foreldrar: Sigurður Pálsson (fæddur 1762 bóndi í Hlöðuvík og fyrri kona hans Ingveldur Snorradóttir.
Kona 1: 10. ágúst 1822, Guðfinna f. 1801, d. 4. júlí 1834, Sigmundsdóttir, Jósefssonar síðast bónda á Horni.
Börn: Elías Einarsson, fórst af steinkasti í Hornbjargi 7. júlí 1846, átján ára gamall. Friðrik Einarsson bóndi á Steinólfsstöðum og síðast í Hælavík. Guðleifur Einarsson, drukknaði ungur og ókvæntur. Sigurður Einarsson bóndi á Dynjanda í Grunnavíkurhreppi. Bjargey Einarsdóttir, átti Arnór Ebenezersson bónda í Rekavík bak Höfn. Margrét Einarsdóttir hreppstjóra á Höfðaströnd. Hann drukknaði eftir tveggja ára sambúð þeirra hjóna. Seinni maður Markgrétar var Hagalín Jóhannesson á Steig. Helga Friðrika Einarsdóttir, átti Bæring Vagnsson í Furufirði. Jóhanna Einarsdóttir giftist ekki. Barn hennar með Bæringi Vagnssyni var Einar Bæringsson hreppstjóri á Dynjanda. Annað barn Jóhönnu með Jóhannesi Jónssyni í Kvíum var Ketilríður Jóhannesdóttir kona Benedikts Hermannssonar í Reykjarfirði.
Sonur Einars Sigurðssonar með Sólbjörtu Ásmundsdóttur, vinnukonu á Horni, var Guðmundur Einarsson húsmaður á Horni.
Kona 2: 22. september 1849, Elín, f. 1809, d. 15. ágúst 1883, Ebenezersdóttir, Jónssonar bónda á Dynjanda. Hún átti síðar Stíg Stígsson bónda á Horni.
Börn: Elías Einarsson bóndi á Horni, Guðfinna Einarsdóttir, átti Guðleif Þorleifsson bónda í Bolungarvík á Ströndum.
Einar Sigurðsson var bóndi á Horni 1822-25, húsmaður í Reykjafirði á Ströndum 1825-27, en fluttist þá aftur að Horni og bjó þar til 1832. Bóndi á Stað í Grunnavík 1832-38, var hreppstjóri í Grunnavík í nokkur ár. Bóndi í Höfn 1838-44. Bóndi á Horni frá 1844 til dánardags. Einar var við góð efni, þegar hann lézt.