Kristinn Plató Grímsson
Kristinn Plató Grímsson. F. 16. október 1894. D. 27. maí 1966.
Foreldrar: Grímur Bjarnason húsmaður á Horni og kona hans Elísa Ólafsdóttir. Kristinn ólst upp á Horni hjá Elíasi Einarssyni.
Kona: 14. júní 1919, Guðný f. 1. september 1888, Halldórsdóttir, Þeófilussonar í N.Miðvík.
Börn: María Ólína Kristinsdóttir, f. 15. janúar 1920, gift Hreiðari Guðlaugssyni verkstjóra í Reykjavík. Guðrún Elín Kristinsdóttir, f. 5. nóvember 1923, átti Torfa Þ. Ólafsson prentara í Reykjavík. Kristinn Elías Magnús Kristinsson, f. 6. janúar 1933, yfirbókari í reykjavík, kvæntur Svanhildi Eglisdóttur.
Dóttir Guðnýjar áður en hún giftist, Guðveig Nielsen gift Gunnari Vilhjálmssyni.
Fósturbörn þeirra hjóna voru Guðmundur Snorri Júlíusson og Gróa Alexandersdóttir.
Kristinn bjó á Horni 1919-1946. Hann fluttist þá til Ísafjarðar og var þar búsettur allmörg ár, en fluttist síðar til Reykjavíkur og andaðaist þar. Iðju- og dugnaðarmaður.