Munur á milli breytinga „Höfn“

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search
(Landkostir)
(Ábúð og afkoma)
Lína 38: Lína 38:

==Ábúð og afkoma==

==Ábúð og afkoma==

Það er áður fram komið, að árið 1681 hefur verið tvíbýli í Höfn. Árið 1703 hefur þar verið einn ábúandi og sjö manns í heimili. En 1710 voru aftur tveir ábúendur með töluverðan bústofn. Síðan er allt óvíst um byggð á jörðinni, þar til 1735, þá hefur hún verið í eyði. [[Hallvarður Hallsson]] hefur verið í Höfn 1744, en allt er óvíst um búskap hans þar. Árið 1753 verður ekki annað séð en að jörðin sé í eyði, og svo hefur enn verið 1862. En 1766 hefur jörðin verið byggð, því að þá hefur verið heimtur þaðan tollur til byggingar hegningarhússins í Reykjavík. Þá hefur jörðin veriði byggð árið 1775, er Olavíus ferðaðist þar um. Loks má svo telja fyrstu búnaðarskýrslu frá 1787, en það hefur Höfn verið í byggð, og er ekki vitað til, að hún hafi síðan farið í eyði, fyrr en sumarið 1944.

Aðrar heimildir um afkomu í Höfn eru af skornum skammti. Til er skiptagerð eftir [[Andrés Gíslaon|Andrés bónda Gíslason]], dagsett 10. febrúar 1844, en það er aðgætandi, að hann bjó þá aðeins á hálfri jörðinni móti [[Einar Sigurðsson|Einari Sigurðssyni]], sem fluttist það ár að [[Horn|Horni]. Var upphæð dánarbúsins 86 rd. 58 sk., þar af 3 hndr. í [[Steig]] í [[Veiðileysfjörður|Veiðileysufirði]] 42 rd. Þá er og til dánarbúsuppskrift og skiptagerð eftir ekkju Andrésar, [[Valgerður Þorsteinsdóttir|Valgerði Þorsteinsdóttur]], er bjó eftir hann með börnum sínum. Er skiptagerðin dagsett 29. maí 1856. Bú Valgerðar var fremur fátæktlegt, samtals 118 rd. 16 sk., þar af 2 hndr. í Steig, þá metin á 68 rd. En Valgerður var í húsmennsku hjá [[Jón Gíslason|Jóni bónda Gíslasyni]] og hafði ekki annan bústofn en nokkrar kindur, svo að dánarbú hennar segir lítið um afkomu á jörðinni á heild.

Árin 1895-1931 bjuggu í Höfn [[Betúel Betúelsson]] og [[Anna Guðmundsdóttir]]. Þau eignuðust 11 börn, sem komust öll til þroska. Betúel tók að sér blautfisksölu fyrir [[Ásgeirsverzslun|verzlun Ásgeir Ásgeirsson]] á Ísafirði árið 1898. Setti Betúel þá upp smáverzlun í skjóli Ásgeirsverzlunar. Ber öllum saman um, sem þekktu til, að hann hafi komizt þar vel af, enda voru synir hans annálaðir dugnaðarmenn. Einn þeirra, [[Sumarliði Betúelsson|Sumarliði]], bjó í Höfn, eftir að foreldrar hans fluttu þaðan, og reisti þar hús það, er enn stendur, vandað mjög og sterklegt. Hefur Slysavarnarfélag Íslands nú keypt húsið og opnað það hröktum skipbrotsmönnum og lúnum ferðalöngum.

Af framangreindu er ljóst, að Hafnarbændur haf að jafnaði komizt allvel af. Á þessari öld urðu þeir, líkt og Hornsbændur, vel efnaðir af eggjasölu til Ísafjarðar.

Litlar heimildur eru um '''húsakynni''' í Höfn frá fyrri tímum, ef frá er talin lýsing Olavíusar frá 1775:

Gaarden selv var ellers næt opbygget af Drivetømmer, Stok paa Stok ligesom í Norge, og Gulvet beklædt med samme uden at man havde giort sig Umage for at skiære Brædder deraf eller engangat hugge Tømmeret firkantet.

Hér er greinilega átt við sama byggingarlag og sr. Jón Eyjólfsson getur sóknarlýsingu sinni og segir, að tíðkist á Ströndum. En engin jarðarúttekt hefur fundizt, sem gefi nokkuð frekar til kynna um byggingar.

Ekki verður skilizt svo við sögu Hafnar, að ekki sé drepið á bænhús, sem þar hefur með vissu staðið, og grafreit. Í jarðabókinni 1710 segir svo:

Hjer hefur að fornu bænhús verið, en er af fallið fyrir manna minni

Áður var getið lýsingar jarðabókarinnar á löngum og erfiðum kirkjuvegi frá Höfn. Hefur það einkum valdið erfiðleikum, er færa þurfti lík til kirkju. Árið 1706 hefur [[Jón Vídalín, biskup|Jón biskup Vídalín]] hreyft því í bréfi til stiftamtmanns, að vígður yrði grafreitur á Hornströndum. En um framkvæmd þess skortir algerlega heimildir. Margt bendir þó til þess, að þar hafi verið vígður reitur, a.m.k. má telja fullvíst, að jarðsett hefur verið í Höfn á 18du öld. Skal nú talið það helzta, er fundizt hefur um það mál

[[Hallvarður Hallson]] segir svo í ljóðabréfi sínu:

Áður fyrr, þá allt var byggt í eyðilöndum,

í helgidómsins heiðri vöndum

í Höfn var kirkja gjörð á Ströndum

Eftir vana sannleiks settum söngur versa,

yfirvaldið bauð að blessa

bæði haust og vor var messað.

Vígður garður veggjalaus þar var til búinn,

leiðin síðan liggja rúin,

landsins eftir venju snúin.

Þessi bygging orðin er í auðnu tómi

nú á tíðum sér ei sómi

svo sem fyrr í heiðnidóm

„Kirkjan“ er að öllum líkindum bænhúsið, er getur í jarðbókinni, og hefur þá enn séð fyrir rústunum af því. Um grafreitinn er enn heimild frá Olavíusi frá 1775:

Den vanskeligste for Indbyggerne er at søge Kirke; thi de maae, eftir Sigende, enten reise 5 Miile til Lands over meget farlige Fieldveje, eller til Søes en langt længere Vei, og det over fire Raster eller stridige Strømme, som ikke er bædre. Man har derfor grebet til at lade vie et Stykke af Tunet eller Hiemme-Marken, for deri at begrave de Døde om Vinteren, som ellers ikke uden største Vanskelighed vilde have kundet føres til Kirke. Af slige Gravsteder fandt man paa Stedet 10, hvoraf de 9 vendede, som sædvanlig, imod Øster og Vester, men det eene, hvorunder berettedes at hvile en nyelig begraven gammel Bonde, noget nær imot S. og N. hvilket saaledes skulde være skeet efter hans sideste Villie, som og at en liden Bønnebog, samt Ulfarsrímur, et Heltedigt om en christen Konge i Saxen, tillige med ham vare blevne jordede. Paa Døren af Bondens efterladte Gaard stod Navnet Jehovah næt udskaaret. Man maae ellers ansee det for den største Lykke for Island, at den sande Gudsdyrkelse har slaaet der overalt saa faste Rødder, at der snart ikke langt fra Strømnæsset undtages; og har til denne Religionens Rodfæstelse ikke lidet hjulpet Mangel af Leilighed til Udsvævelser. Har altsaa Handelen længe væred lige som sluttet i Lænker, saa har dog Guds Ord faaet desto friere Løb.

Hér ber Olavíusi alveg saman við Hallvarð Hallsson, þ.e. að garðurinn hafi verið vígður og í honum jarðsett. Freistandi væri að halda að hinn guðhræddi og sérvitri bóndi, er Olavíus getur, sé [[Hallur Erlendsson]] á Horni, faðir Hallvarðs, en af kröftum hans og fjölkynngi eru miklar sögur. Segir [[Gísli Konráðsson]], að Hallur hafi síðast búið í Höfn og verið grafinn þar út og suður, ásamt bænabók og Úlfarsrímum. Ber honum grunsamlega vel heim við Olavíus, svo að ástæða er til að gruna hann um að hafa tekið frásögn hans og snúið henni upp á Hall. En óneitanlega kemur tíminn vel heim við Hall, hann var enn á lífi 1762, 71ns árs. En þetta er síðasta rituð heimild um kirkjugarðinn í Höfn. Sr. Jón Eyjólfsson getur hans ekki í sóknarlýsingu sinni, þótt hann minnist á bænhúsið. Hann segir svo:

Í Höfn hefur verið bænhús, nú fyrir löngu aftekið, en ekki er hægt að vita hvers vegna, því það væri ómissanda fyrir Hafnarbásinn allan, og ætið hægra fyrir víkurnar en út að [[Staður í Aðalvík|Stað]], þegar fær er [[Kamburinn]] og [[Atlaskarð]], og þeir munu allir hafa átt þangað sókn

Svo segir Sumarliði Betúelsson, er síðastur manna bjó í Höfn, að vel hafi sézt fyrir leiðum í hinum forna grafreit, meðan hann var þar. Ekki gat ég þó séð þar annað en venjulegan þúfnarima sumarið 1964. Hefur hann aflagazt, þegar hætt var að slá túnið og sinurubb hlóðst upp ár eftir ár.

==Ábúendur==

==Ábúendur==

Útgáfa síðunnar 18. september 2011 kl. 22:21

Ós allvatnsmikill rennur í Hornvík austanverða og skilur lönd Horns og Hafnar. Innan við ósinn er sandmelur allhár næst sjónum, en ofan við hann er nokkurt undirlendi í botni víkurinnar. Út í víkina gengur hátt fjall, Hafnarfjall, og skilur lönd Hafnar og Rekavíkur bak Höfn. Vogur sá, er myndast austan við fjallið er nefndur Hafnarbás. Austan undir Hafnarfjalli stendur bærinn Höfn á rana, er gengur austur úr fjallinu. Túnið er allstórt, og skiptast þar á grasbalar og dýjaveitur.

Hafnar er fyrst getið í rekaskrá Vatnsfjarðarkirkju 1327. Þar segir, að kirkja í Vatnsfirði eigi fimmtung og sjöttung hvalreka í Höfn.

Í Gíslamáldögum frá því um 1570 er talið meðal eigna Eyrarkirkju í Seyðisfirði „Jtem Landhøffn Lxxx alner í landskylld“. Landhöfn hef ég hvergi annars staðar fundið. Í nafnaskrá fornbréfasafns stendur raunar „Landhöfn í Álptafirði vestra“, en þar hefur hvorki fundizt getið Hafnar né Landhafnar í nokkrum heimildum. Hygg ég það því ágizkun eina, þar eð Eyrarkirkja átti jarðir í Álftafirði. Ég gizka eindregið á, að Landhöfn þessi sé Höfn á Ströndum. Í fyrrnefndum reikningi um styrjaldarhjálp til konungs frá 1681 er Höfn talin meðal jarða Magnúsar sýslumanns Magnússonar á Eyri við Seyðisfjörð og konu hans. Eyri var þá meðal óðalsjarða þeirra hjóna. En á spássíu reikningsins stendur við Höfn og tvær jarðir í Álftafirði: „Kirkjunnar jarðir á Eyri“. Viðrist Magnús því hafa haft umboð kirkjujarðanna, og því eru þær taldar með jörðum hans. Árið 1703 er Höfn talin kirkjujörð, og 1710 var eigandi hennar Eyrarkirkja í Seyðisfirði „og proprietarii þar til“. Verður ekki annað séð en hún hafi síðan verið í eigu Eyrarkirkju, a.m.k. til 1847. Hið næsta sem fundizt hefur skráð um þetta efni, er þinglýsing gjafabréfs Jóns Guðmundssonar, bónda í Eyrardal, til Magnúsar Torfasonar sýslumanns Ísafjarðarsýslu, fyrir allri jörðinni. Hefur gjafabréfið verið dagsett 9. september 1915. Er því líklegt, að Jón hafi keypt jörðina af Eyrarkirkju, þó að samtíma heimildir skorti. Síðasti ábúandi jarðarinnar, Sumarliði Betúelsson, keypti hana aftur af Magnúsi sýslumanni um 1936 á 2500 kr. og á hana enn.

Dýrleiki og afgjald

Í reikningnum góða frá 1681 stendur við Höfn, þar sem hún er talin meðal jarða Magnúsar sýslumanns Magnússonar:

Höfn 8 hndr. — landskuld 80 [álnir]. Eignarkúgildi 1.

En þar, sem hún er talin meðal ábúðarjarða leiguliða, stendur:

Höfn, leiguliði Oddur Jónsson, landskuld 80 álnr, leigukúgildi 1½. Eignarkúgildi 0.- 3 fjórðungar. Eiríkur þar, landskuld 30 álnir, leigukúlgildi 1.- 2 fjórðungar

Samkvæmt þessu hefur landskuld af allri jörðinni verið 110 álnir, og 2½ leigukúlgildi fylgt henni. Er ekki ósennilegt, að kirkjan á Eyri hafi átt 1½ kúgildi og tekið 30 álnir í landskuld, en sýslumaður sjálfur það, sem honum er talið er hér að ofan.

Öllum heimildum ber saman um fornt mat jarðarinnar, þ.e. 8 hundruð. En landskuld hefur minnkað snemma og leigukúgildi fallið niður. Svo segir jarðabókin 1710:

Landskuld xl álnir síðan bóluna, áður lxxx álnir. Betalast í fiski eður landaurum, oftast innan hrepps þángað sem til sagt er, eftir proportion.
Kúgildi ekkert í margt ár, en áður meir en fyrir 30 árum var hjer eitt og þriðjúngur annars, og betalaðist þá leigur í fiski eður landaurum.

Árið 1788 hefur Höfn svo verið metin til 26 ríkisdala, landskuld verið 1 rd. 12 sk. Við nýja jarðamatið 1849 var Höfn metin minna en að meðallagi og eki gert ráð fyrir kúgildi. Hvert fornt hundrað var metið 18 ríkisdalir og jörðin öll 144 ríkisdalir. Við fasteignamat 1942 var heildarmat Hafnar 5700 kr., þar af 2000 kr. í landi og 3700 í húsum.

Landkostir

Svo segir í jarðabók 1710:

Fóðrast kann á allri jörðinni vi kýr, xxx ær, xv lömb, ii hestar. Torfrista og stúnga lök og sendin. Móskurður til eldiviðar lítt nýtandi. Silúngsveiði lítil í Hafnarós, brúkast þó. Grastekja næg. Rekavon lítil og heppnast sjaldan. Túninu grandar sandfok til stórskaða. Enginu grandar vatn, sem jetur úr rótina. Kirkjuvegur yfir allan máta torsóktur og erfiður, þingmannaleið áleiðis, og sækir fólkið því stundum kirkjuna einu sinni á vetri, stundum aldrei. Hreppamannaflutningur lángur og torsóktur yfir Krákugil sem er oftast ófært á vetur. Heimræði er hjer ár um kríng þá fiskur er fyrir, og lending er góð, og gengur hjer nú eitt skip ábúenda, áður hafa stundum gengið tvö.

Ólíkt feguri lýsingu gefur Ólafur Olavíus frá sumrinu 1775:

Man maae tilstaae, at Skaberen ikka har været sparsom paa sin Godiøremjed. dem Gamg demme Bugt blev dannet; thi foruden rigeligt Strand-Fiskerie og Forellefangst, ere baade Dalene, Fieldsiderne, Tunet eller Hiemme-Marken og Engene, fosynede med overflødigt Græs, hvortil kommer en tryg Landing og brugbar Havn om Sommerdage i Nærværelsen, ikke at tale om Hornbierget, der og giver sine Fordeele. Dog maae jeg erindre, at Landingen, som roeses saa meget, kom mig heel mistænkelig for, efterdi den laae tæt ved en lav Klippe-Rad eller Bælte, der gik ud Søen, og det paa Havsiden; hvorpaa Bølgerne endelig maae kunne støde an, og foraarsage Uroe ved Strandbredden; men Erfarenhed, og Fiskernes Forsikkringer faae her at gielde for gode Vidner

Hér má sjá, að Olavíus hefur talið nálægt við Hornbjarg til mikilla hlunninda, og verður að hafa fyrir satt, að Hafnarbændur hafi a.m.k. á þeim tíma sótt þangað björg, þótt þess sé ekki sérstaklega getið í jarðabókinni. Olavíus getur þess enn fremur, að sjór hafi lækkað í Höfn, því að hann hafi séð þar 60 álna löng tré og lengri, 500 föðmum ofar en sjór gekk þá hæst, en nú séu þau að mestu eða öllu leyti hulin grassverði. Sums staðar sá Olavíus digra trédrumba standa út úr jörðinni langt fyrir ofan Höfn. Hvað sem segja má um bollaleggingar Olavíusar um lækkun sjávarins, sýna þessi ummæli, að reki hefur verið allmikill í Höfn, þótt jarðabókin geri lítið úr honum. Þá athugaði Olavíus allnáið hafnarskilyrði í Höfn, og telur hann Hafnarbásinn sæmilega sumarhöfn, enda liggi Hollendingar þar ósjaldan við stjóra.

Þannig leizt Olavíusi á Höfn 1775. Sr. Jón Eyjólfsson leit ekki eins björtum augum á landkosti Hafnar árið 1847:

Tún snöggt mjög og sandorpið. Engjar miklar og góðar. Útigangur enginn, fjara því nær. Reki í minna lagi. Móskurður enginn. Jafnviðri mest af norðri, ofsi af vestri, brimlaust. Lítið um fisk.

Líka sögu segir álitsgerð matsnefndarinnar frá 1849:

Sandfok, túnleysi, árennsli og vetrarþyngsli valda því að jörð þessa skortir svo mjög við meðaljarðir.

Jarðabókin telur lendingu góða í Höfn, en Olavíusi leizt hún ótrygg. Sr. Jón segir hins vegar aðeins „brimlaust“. Munu þær aðstæður hafa bjargað fimm skipshöfnum frá drukknun í norðanveðri, sem gerði snemma í marz 1897. Þá strönduðu fimm þilskip hjá Höfn, en menn björguðust allir. Í sama veðri fórst eyfirzka hákarlaveiðiskipið Draupnir í Barðsvík, og öll áhöfn týndist. „Lítið um fisk“, segir sr. Jón enn fremur, og mun það vafalítið svo að skilja, að vantað hefur nógu stóra báta til að sækja á gjöfulli mið. Til landbúskapar virðist jörðin hafa verið í betra lagi. Sandágangur hefur spilt jörðinni mest, enda má nú svo heita, að allur austurhluti víkunnar sé sandorpinn. Þó er melgresið nú á góðri leið að græða upp a.m.k. talsverðan hluta sandsins. Mýrlendi er hins vegar, þegar nær dregur Hafnarfjalli, og hefur trúlega verið rýrt, meðan búið í Höfn, þótt loðið væri eftir áratuga friðun sumarið 1964.

Ábúð og afkoma

Það er áður fram komið, að árið 1681 hefur verið tvíbýli í Höfn. Árið 1703 hefur þar verið einn ábúandi og sjö manns í heimili. En 1710 voru aftur tveir ábúendur með töluverðan bústofn. Síðan er allt óvíst um byggð á jörðinni, þar til 1735, þá hefur hún verið í eyði. Hallvarður Hallsson hefur verið í Höfn 1744, en allt er óvíst um búskap hans þar. Árið 1753 verður ekki annað séð en að jörðin sé í eyði, og svo hefur enn verið 1862. En 1766 hefur jörðin verið byggð, því að þá hefur verið heimtur þaðan tollur til byggingar hegningarhússins í Reykjavík. Þá hefur jörðin veriði byggð árið 1775, er Olavíus ferðaðist þar um. Loks má svo telja fyrstu búnaðarskýrslu frá 1787, en það hefur Höfn verið í byggð, og er ekki vitað til, að hún hafi síðan farið í eyði, fyrr en sumarið 1944.

Aðrar heimildir um afkomu í Höfn eru af skornum skammti. Til er skiptagerð eftir Andrés bónda Gíslason, dagsett 10. febrúar 1844, en það er aðgætandi, að hann bjó þá aðeins á hálfri jörðinni móti Einari Sigurðssyni, sem fluttist það ár að [[Horn|Horni]. Var upphæð dánarbúsins 86 rd. 58 sk., þar af 3 hndr. í Steig í Veiðileysufirði 42 rd. Þá er og til dánarbúsuppskrift og skiptagerð eftir ekkju Andrésar, Valgerði Þorsteinsdóttur, er bjó eftir hann með börnum sínum. Er skiptagerðin dagsett 29. maí 1856. Bú Valgerðar var fremur fátæktlegt, samtals 118 rd. 16 sk., þar af 2 hndr. í Steig, þá metin á 68 rd. En Valgerður var í húsmennsku hjá Jóni bónda Gíslasyni og hafði ekki annan bústofn en nokkrar kindur, svo að dánarbú hennar segir lítið um afkomu á jörðinni á heild.

Árin 1895-1931 bjuggu í Höfn Betúel Betúelsson og Anna Guðmundsdóttir. Þau eignuðust 11 börn, sem komust öll til þroska. Betúel tók að sér blautfisksölu fyrir verzlun Ásgeir Ásgeirsson á Ísafirði árið 1898. Setti Betúel þá upp smáverzlun í skjóli Ásgeirsverzlunar. Ber öllum saman um, sem þekktu til, að hann hafi komizt þar vel af, enda voru synir hans annálaðir dugnaðarmenn. Einn þeirra, Sumarliði, bjó í Höfn, eftir að foreldrar hans fluttu þaðan, og reisti þar hús það, er enn stendur, vandað mjög og sterklegt. Hefur Slysavarnarfélag Íslands nú keypt húsið og opnað það hröktum skipbrotsmönnum og lúnum ferðalöngum.

Af framangreindu er ljóst, að Hafnarbændur haf að jafnaði komizt allvel af. Á þessari öld urðu þeir, líkt og Hornsbændur, vel efnaðir af eggjasölu til Ísafjarðar.

Litlar heimildur eru um húsakynni í Höfn frá fyrri tímum, ef frá er talin lýsing Olavíusar frá 1775:

Gaarden selv var ellers næt opbygget af Drivetømmer, Stok paa Stok ligesom í Norge, og Gulvet beklædt med samme uden at man havde giort sig Umage for at skiære Brædder deraf eller engangat hugge Tømmeret firkantet.

Hér er greinilega átt við sama byggingarlag og sr. Jón Eyjólfsson getur sóknarlýsingu sinni og segir, að tíðkist á Ströndum. En engin jarðarúttekt hefur fundizt, sem gefi nokkuð frekar til kynna um byggingar.

Ekki verður skilizt svo við sögu Hafnar, að ekki sé drepið á bænhús, sem þar hefur með vissu staðið, og grafreit. Í jarðabókinni 1710 segir svo:

Hjer hefur að fornu bænhús verið, en er af fallið fyrir manna minni

Áður var getið lýsingar jarðabókarinnar á löngum og erfiðum kirkjuvegi frá Höfn. Hefur það einkum valdið erfiðleikum, er færa þurfti lík til kirkju. Árið 1706 hefur Jón biskup Vídalín hreyft því í bréfi til stiftamtmanns, að vígður yrði grafreitur á Hornströndum. En um framkvæmd þess skortir algerlega heimildir. Margt bendir þó til þess, að þar hafi verið vígður reitur, a.m.k. má telja fullvíst, að jarðsett hefur verið í Höfn á 18du öld. Skal nú talið það helzta, er fundizt hefur um það mál

Hallvarður Hallson segir svo í ljóðabréfi sínu:

Áður fyrr, þá allt var byggt í eyðilöndum,

í helgidómsins heiðri vöndum
í Höfn var kirkja gjörð á Ströndum

Eftir vana sannleiks settum söngur versa,
yfirvaldið bauð að blessa
bæði haust og vor var messað.

Vígður garður veggjalaus þar var til búinn,
leiðin síðan liggja rúin,
landsins eftir venju snúin.

Þessi bygging orðin er í auðnu tómi
nú á tíðum sér ei sómi

svo sem fyrr í heiðnidóm

„Kirkjan“ er að öllum líkindum bænhúsið, er getur í jarðbókinni, og hefur þá enn séð fyrir rústunum af því. Um grafreitinn er enn heimild frá Olavíusi frá 1775:

Den vanskeligste for Indbyggerne er at søge Kirke; thi de maae, eftir Sigende, enten reise 5 Miile til Lands over meget farlige Fieldveje, eller til Søes en langt længere Vei, og det over fire Raster eller stridige Strømme, som ikke er bædre. Man har derfor grebet til at lade vie et Stykke af Tunet eller Hiemme-Marken, for deri at begrave de Døde om Vinteren, som ellers ikke uden største Vanskelighed vilde have kundet føres til Kirke. Af slige Gravsteder fandt man paa Stedet 10, hvoraf de 9 vendede, som sædvanlig, imod Øster og Vester, men det eene, hvorunder berettedes at hvile en nyelig begraven gammel Bonde, noget nær imot S. og N. hvilket saaledes skulde være skeet efter hans sideste Villie, som og at en liden Bønnebog, samt Ulfarsrímur, et Heltedigt om en christen Konge i Saxen, tillige med ham vare blevne jordede. Paa Døren af Bondens efterladte Gaard stod Navnet Jehovah næt udskaaret. Man maae ellers ansee det for den største Lykke for Island, at den sande Gudsdyrkelse har slaaet der overalt saa faste Rødder, at der snart ikke langt fra Strømnæsset undtages; og har til denne Religionens Rodfæstelse ikke lidet hjulpet Mangel af Leilighed til Udsvævelser. Har altsaa Handelen længe væred lige som sluttet i Lænker, saa har dog Guds Ord faaet desto friere Løb.

Hér ber Olavíusi alveg saman við Hallvarð Hallsson, þ.e. að garðurinn hafi verið vígður og í honum jarðsett. Freistandi væri að halda að hinn guðhræddi og sérvitri bóndi, er Olavíus getur, sé Hallur Erlendsson á Horni, faðir Hallvarðs, en af kröftum hans og fjölkynngi eru miklar sögur. Segir Gísli Konráðsson, að Hallur hafi síðast búið í Höfn og verið grafinn þar út og suður, ásamt bænabók og Úlfarsrímum. Ber honum grunsamlega vel heim við Olavíus, svo að ástæða er til að gruna hann um að hafa tekið frásögn hans og snúið henni upp á Hall. En óneitanlega kemur tíminn vel heim við Hall, hann var enn á lífi 1762, 71ns árs. En þetta er síðasta rituð heimild um kirkjugarðinn í Höfn. Sr. Jón Eyjólfsson getur hans ekki í sóknarlýsingu sinni, þótt hann minnist á bænhúsið. Hann segir svo:

Í Höfn hefur verið bænhús, nú fyrir löngu aftekið, en ekki er hægt að vita hvers vegna, því það væri ómissanda fyrir Hafnarbásinn allan, og ætið hægra fyrir víkurnar en út að Stað, þegar fær er Kamburinn og Atlaskarð, og þeir munu allir hafa átt þangað sókn

Svo segir Sumarliði Betúelsson, er síðastur manna bjó í Höfn, að vel hafi sézt fyrir leiðum í hinum forna grafreit, meðan hann var þar. Ekki gat ég þó séð þar annað en venjulegan þúfnarima sumarið 1964. Hefur hann aflagazt, þegar hætt var að slá túnið og sinurubb hlóðst upp ár eftir ár.

Ábúendur