Herborg Kjartansdóttir, Þverdal

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search

Herborg Kjartansdóttir. Fædd 10. október 1851. Dáin 14. maí 1932.


Hún bjó með sonum sínum í Þverdal 1912-20. Marías sonur hennar mun hafa talizt fyrir búi hjá henni 1918-20. Sjá Efri-Miðvík.


Foreldrar: Kjartan Sigurðsson bóndi á Læk og María Jónsdóttir.

Eiginmaður: 11. september 1874, Finnbogi Árnason bóndi í Efri-Miðvík.

Börn: Oddný Finnbogadóttir, seinni kona Þorbergur Jónsson í Efri-Miðvík. Katarínus Friðrik Finnbogason lengst húsmaður á Látrum. Kjartan Finnbogason bóndi í Efri-Miðvík. Steinunn Finnbogason giftist ekki. Guðjón Þorsteinn Finnbogason húsmaður í Þverdal. Árni Finnbogason húsmaður í Þverdal og á Látrum. Marías Finnbogason trésmiður.

Finnbogi fórst úr Ritnum við eggsig. Eftir lát Finnboga bjó Herborg í Efri Miðvík til 1911. Þá fluttist hún í Þverdal og bjó þar með sonum sínum til 1920.