Munur á milli breytinga „Ásmundur Þorleifsson, Horni“
Jump to navigation
Jump to search
m (Ásmundur Þorleifsson færð á Ásmundur Þorleifsson, Horni) |
|
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 21. október 2012 kl. 22:20
Ásmundur Þorleifsson. Hann var bóndi á Horni 1788-89, líklega aðfluttur, ef til vill sonur Þorleifs Guðmundssonar bónda á Hálsi á Ingjaldssandi.
Ásmundur var kominn í Þverdal 1784. Kona hans var Hildur Guðmundsdóttir. Dóttir þeirra var Helga Ásmundsdóttir, kona Páls Sigurðssonar á Horni. Hildur átti síðar Einar Einarsson yngri í Þverdal.
Ásmundur fluttist frá Horni í Kjaransvík 1789 og bjó þar til 1792-93. Þar mun hann hafa látizt, ekki gamall maður.