Munur á milli breytinga „Rekavík bak Látrar“
(→Ásmundur Árnason) |
(→Ólafur Jónsson) |
||
| Lína 32: | Lína 32: | ||
===Ólafur Jónsson=== | ===Ólafur Jónsson=== | ||
{{:Ólafur Jónsson, Hlöðuvík}} | {{:Ólafur Jónsson, Hlöðuvík}} | ||
| + | |||
| + | ===Jón Björnsson=== | ||
| + | {{:Jón Björnsson, Rekavík bak Látur}} | ||
| + | |||
| + | ===Pálmi Jónsson=== | ||
| + | {{:Pálmi Jónsson, Rekavík bak Látur}} | ||
| + | |||
| + | ===Halldór Þeofílusson=== | ||
| + | {{:Halldór Þeofílusson, Neðri Miðvík}} | ||
| + | |||
| + | ===Kristján Jónsson=== | ||
| + | {{:Kristján Jónsson, Neðri Miðvík}} | ||
| + | |||
| + | ===Guðmundur Pálmason=== | ||
| + | {{:Guðmundur Pálmason, Rekavík bak Látur}} | ||
| + | |||
| + | ===Friðrik Magnússon=== | ||
| + | {{:Friðrik Magnússon, Látrum}} | ||
| + | |||
| + | ===Sigurgeir Pálmason=== | ||
| + | {{:Sigurgeir Pálmason, Rekavík bak Látur}} | ||
| + | |||
| + | ===Sölvi Pálmason=== | ||
| + | {{:Sölvi Pálmason, Rekavík bak Látur}} | ||
| + | |||
| + | ===Pálmi Ólafur Guðmundsson=== | ||
| + | {{:Pálmi Ólafur Guðmundsson, Rekavík bak Látur}} | ||
| + | |||
| + | ===Stefán Guðmundsson=== | ||
| + | {{:Stefán Guðmundsson, Rekavík bak Látur}} | ||
Útgáfa síðunnar 13. júní 2026 kl. 22:25
Fyrir utan Tungu er fjallshyrnan Kóngar (366 m), utan þeirra eru nokkrir litlir dalir upp í fjallgarðinn, er nefnast Hvestudalir. Upp og vestur af þeim gnæfir fjallið Hvesta (513 m). Heldur hún að Fljótavík að sunnan. Frá Hvestu inn að Tröllaskarði er fjallgarður, sem nefnist einu nafni Kjölur. Upp á hann er farið úr Tungudal, og er sú leið, til Látra og Rekavíkur, oft nefnd Tunguheiði. Vestan við Hvestu er lítil vík, Rekavík bak Látur. Vestan hennar skagar Straumnes útnorður í haf. Straumnes er í rauninni gríðarstórt fjall: Yzt norðaustan á því er fjallið nefnt Skorar (435 m), og halda þær að Rekavík að vestan. Innan við Skorar er dalur, sem nefnist Öldu- dalur. Neðst í honum, vestan til við botn víkurinnar, er bærinn Rekavík. Bæjarfjall (430 m) tekur við fyrir innan Öldudal, þá er Grasdalur og innan við hann Grasdalsfjall. Innan þess opnast sjálf Aðalvík, enda er þá skammt til Látra.
Undirlendi Rekavíkur er að mestu hulið af allstóru vatni, Reka- víkurvatni (2-3 km²). Milli vatns og sjávar er mjór malarkambur. Innst í víkinni er annað vatn lítið, Hálsavatn. Hár malarkambur, að mestu þakinn gróðri, er milli vatnanna og nefnist Skammárholt, en Skammá rennur gegnum hann úr Hálsavatni í Rekavíkurvatn. Með- fram vatninu og víkinni að vestan er allmikið graslendi, en nær ekkert að austan, þar liggja hlíðar Hvestu niður í vatnið, snarbrattar og gróðurlausar. Bandaríska herliðið lét leggja akfæran veg frá Látrum að Rekavík, og af honum liggur akvegur upp úr Grasdal upp á Straumnesfjall. Þetta er eina akfæra bæjarleiðin í hreppnum.
Rekavíkur veit ég fyrst getið í rekaskrá Vatnsfjarðarkirkju 1327. Þar segir, að Vatnsfjarðarkirkja eigi „siettungh i ollum Reka j Rekavik a bak laatrum". Sama er sagt i Vilkinsmáldaga 1397. Í sálugjafabréfi Björns Einarssonar Jórsalafara frá 25. júlí 1405 getur þess, að Björn gefi ma. til legstaðar sér Vatnsfjarðarkirkju „siottung j aullum Reka j Rekavik aa bak latrum“. Eftir þessu mætti ætla, að Vatnsfjarðarkirkja hefði eignast tvö sjöttu hluta í öllum reka, þ.e. þriðjung. Svo hefur þó ekki verið talið, er Stefán biskup Jónsson setti Vatnsfjarðarkirkju máldaga 1509. Í honum stendur enn „siettvngvr i avllvm reka j rekavik hia latrvm“. Samvkæmt Vilkinsmáldaga 1397 hafa kirkjurnar í Aðalvík og Grunnavík báðar átt rekaítök í Rekavík, Aðalvíkurkirkja „tolfttung hualreka oc vidreka med agoda“, og Grunnavíkurkirkja er talinn „tolftungur i hualreka oc xvjde hlutur, tolftungur j vidreka oc ollum giædumm“. Sömu ítaka er getið í Gíslamáldögum frá 1570 og tekið fram, að Einar Eiríksson hafi gefið þessi ítök til kirknanna. Þeirra er þó ekki getið í testamentisbréfi EInars, sem varðveist hefur, frá 1383. Um eignarhald jarðarinnar nægir að vísa til þess, er áður seigir um Atlastaði, þar til hún varð konungsgóss 1541. Árið 1895 keyti ábúandi hennar, Pálmi Jónsson, hana af landssjóði fyrir 400 kr. út í hönd. Afsalsbréf til Pálma var gefið út 19. marz 1894.
Efnisyfirlit
- 1 Ábúendur
- 1.1 Jón Guðlaugsson
- 1.2 Bjarni Gíslason
- 1.3 Kolbeinn Jónsson
- 1.4 Þorsteinn Einarsson
- 1.5 Jón Guðmundsson
- 1.6 Þuríður Sigurðardóttir
- 1.7 Árni Jónsson
- 1.8 Ásmundur Árnason
- 1.9 Ívar Bjarnason
- 1.10 Björn Guðmundsson
- 1.11 Ólafur Jónsson
- 1.12 Jón Björnsson
- 1.13 Pálmi Jónsson
- 1.14 Halldór Þeofílusson
- 1.15 Kristján Jónsson
- 1.16 Guðmundur Pálmason
- 1.17 Friðrik Magnússon
- 1.18 Sigurgeir Pálmason
- 1.19 Sölvi Pálmason
- 1.20 Pálmi Ólafur Guðmundsson
- 1.21 Stefán Guðmundsson
Ábúendur
Jón Guðlaugsson
Jón Guðlaugsson, Rekavík bak Látur
Bjarni Gíslason
Bjarni Gíslason, Rekavík bak Látur
Kolbeinn Jónsson
Kolbeinn Jónsson, Rekavík bak Látur
Þorsteinn Einarsson
Þorsteinn Einarsson, Rekavík bak Látur
Jón Guðmundsson
Jón Guðmundsson, Rekavík bak Látur
Þuríður Sigurðardóttir
Þuríður Sigurðardóttir. F. um 1736. Var á lífi 1801.
Hún hefur líklega verið dóttir Sigurðar Eldjárnssonar í Efri-Miðvík. Giftist ekki. Hún bjó í Rekavík 1786-89. Bjó í Hlöðuvík 1789-91, Sléttu 1791-92, var búlaus 1792-93. Bjó aftur í Hlöðuvík 1793-93. Hún var í Kjaransvík 1801 og þá orðin sveitlæg.
Árni Jónsson
Ásmundur Árnason
Ásmundur Árnason, Rekavík bak Látur
Ívar Bjarnason
Ívar Bjarnason, Rekavík bak Látur
Björn Guðmundsson
Björn Guðmundsson, Rekavík bak Látur
Ólafur Jónsson
Ólafur Jónsson. F. um 1791. D. 13. nóvember 1855.
Foreldrar: Jón Þorkelsson bóndi á Atlastöðum og kona hans Þóra Snorradóttir.
Kona: Soffía, f. 1793, d. 22. marz 1859, Jónsdóttir, EInarssonar á Steinólfsstöðum og seinni konu hans, Guðrúnar Lárentíusdóttur. Hún var dóttir Lárentíusar Erlendssonar sýslumanns Ólafssonar. Soffía var hagmælt, og geymast enn í minni nokkrar vísur hennar.
Börn: Sveinn Ólafsson, dó ókvæntur 1866. Kjartan Ólafsson bóndi á Atlastöðum. Kári Ólafsson, d. 23. des. 1876, ókvæntur, átti son með Herborgu Friðriksdóttur í N. miðvík, Þórð Kárason á Látrum. Karólína Ólafsdóttir, átti fyrr Þeófílusson á Látrum, síðar Ísleif Ísleifsson í Hlöðuvík. Dóttir Ólafs með Ástríði Jónsdóttur, systur konu hans, var Guðrún Ólafsdóttir kona Jósefs Hjálmarssonar á Atlastöðum.
Ólafur bjó með móður sinni á Atlastöðum 1816. Bóndi í Rekavík 1823-25. Bóndi á Atlastöðum 1825-30. Bóndi í Hlöðuvík 1830-45. Bóndi á Atlastöðum frá 1845 til æviloka.
Jón Björnsson
Jón Björnsson, Rekavík bak Látur
Pálmi Jónsson
Pálmi Jónsson, Rekavík bak Látur
Halldór Þeofílusson
Halldór Þeofílusson, Neðri Miðvík
Kristján Jónsson
Kristján Jónsson, Neðri Miðvík
Guðmundur Pálmason
Guðmundur Pálmason, Rekavík bak Látur
Friðrik Magnússon
Sigurgeir Pálmason
Sigurgeir Pálmason, Rekavík bak Látur
Sölvi Pálmason
Sölvi Pálmason, Rekavík bak Látur
Pálmi Ólafur Guðmundsson
Pálmi Ólafur Guðmundsson, Rekavík bak Látur
Stefán Guðmundsson
Stefán Guðmundsson Fædddur 31. maí 1906.
Foreldrar: Guðmundur Pálmason bóndi í Rekavík og kona hans Ketilríður Þorkelsdóttir. Ókvæntur.
Stefán var bóndi í Rekavík 1937-47. Hann fluttist þá inn í Álftafjörð.