Þórður Jónsson, Atlastöðum
Jump to navigation
Jump to search
Þórður Jónsson. Fæddur 1780. Dáinn 7. mars 1823.
Foreldrar: Jón Þorkelsson bóndi í Hlöðuvík, síðar á Atlastöðum, og kona hans Þóra Snorradóttir.
Kona: 10. ágúst 1822, Soffia Mahalalellsdóttir, Árnasonar í Þverdal. Hún átti síðar Ásgeir Halldórsson á Glúmsstöðum.
Barn: Þóra Þórðardóttir, fædd 1823, dáin 4. júní 1887, giftist ekki, en dóttir hennar með Pétri Þorsteinssyni vinnumanni í Höfn var Guðfinna Pétursdóttir.
Þórður Jónsson var húsmaður á Atlastöðum 1823-24. „Deyði hastarlega á víðavangi“, segir í kirkjubókinni.