Helgi Guðmundsson, Glúmsstöðum
Helgi Guðmundsson. Fæddur 1794. Dáinn 3. apríl 1865.
Foreldrar: Guðmundur Guðmundsson bóndi í Þverdal og kona hans Hildur Ólafsdóttir
Kona 1: Rannveig, fædd 1795, dáin 29. marz 1823, Þorsteinsdóttir, ólst upp í Kvíum í Jökulfjörðum.
Börn: Benóný Helgason, dáinn 7. október 1835 úr holdsveiki, ókvæntur. Hjálmar Helgason fæddur 22. júní 1822, fluttist með sérs Stefáni Hanssyni austur í Fljótshlíð.
Kona 2: 24. apríl 1831, Guðrún, fædd 1791, dáin 2. maí 1863, Eyjólfsdóttir, Snjólfssonar á Hesteyri.
Barn: Herborg Helgadóttir, giftist ekki, en átti son með Rósinkar Mikaelssyni í Kjaransvík, Benóný Rósinkarsson, dó átta ára.
Helgi var bóndi á Glúmsstöðum 1822-1836. Hann var niðursetningur á Látrum 1840 og virðist hafa verið sjúklingur á sveit eftir það.
Herborg er sögð Zacharíasdóttir/Sakaríasdóttir í manntalinu 1835, hugsanlega ruglingur við nöfnu hennar í Stakkadal