Einar Friðriksson, Neðri Miðvík
Jump to navigation
Jump to search
Einar Friðriksson. Fæddur 3. júlí 1839. Dáinn 26. nóvember 1883.
Foreldrar: Friðrik Hallsson í Neðri Miðvík og kona hans Katrín Jónsdóttir.
Kona: 22. september 1862, Ragnhildur, fædd 21. marz 1837, dáin 25. júní 1866, Jóhannesdóttir, Jóhannessonar bónda í Skáladal, síðar í Efri Miðvík.
Börn: Vigdís Einarsdóttir, fædd 29. júní 1860, dáin 26. nóvember 1943, kona séra Péturs Maacks á Stað í Grunnavík. Friðrik Einarsson, fæddur 2. marz 1862, kvæntist ekki. Steinunn Einarsdóttir, fædd 23. september 1863.
Einar Friðriksson var húsmaður og bóndi í Neðri Miðvík 1862-66. Var eftir það vinnumaður og húsmaður með börn sín. Hann andaðist i Efri Miðvík og var þá sagður ekkill, sjálfs sín.