Skáladalur

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search

Ábúendur

Sigurður Guðmundsson

Sigurður Guðmundsson. Fæddur um 1654.

Hann bjó ókvæntur og barnlaus í Skáladal 1703. Meira er ekki um hann vitað.


Ólafur Björnsson

Ólafur Björnsson. Fæddur um 1673. Dánarár ókunnugt.

Ólafur bjó í Skáladal 1710, en ekki er vitað hve lengi eftir það. Líklega er það sá Ólafur, sem var vinnumaður á Hesteyri 1703.


Jón Bjarnason

Jón Bjarnason. F. um 1692, var á lífi 1753.

Hann mun hafa verið sonur Bjarna Jónssonar á Látrum og konu hans Guðrúnar Guðlaugsdóttur. Hann bjó í Skáladal 1735, en var bóndi í Hælavík 1753.

Í þjóðsögum er sagt, að Snorri Björnsson, prestur á Stað í Aðalvík og síðar á Húsafelli, hafi átt í galdrasviptingum við Jón, gamlan bónda í Hælavík. Ef til vill hefur það verið þessi Jón.


Einar Þorláksson

Einar Þorláksson. Fæddur um 1699. Var á lífi 1762.

Foreldrar: Þorlákur Bárðarson bóndi á Kaldrananesi í Bjarnarfirði á Ströndum og kona hans Guðrún Einarsdóttir

Ekki verður með vissu sagt hver börn Einars hafa verið, en líklega má telja að meðal þeirra hafi verið: Ólafur Einarsson bóndi á Látrum, Einar Einarsson bóndi á Læk og ef til vill Halldóra Einarsdóttir, sem bjó ekkja á Horni 1787.

Einar var ekki kominn í Skáladal 1744, en var farinn að búa þar 1753 og bjó þar fram yfir 1762. Líklega hefur Ólafur Einarsson búið nokkur ár í Skáladal, áður en hann fluttist að Látrum.


Bjarni Jónsson

Bjarni Jónsson, Skáladal

Einar Ásgrímsson

Einar Ásgrímsson, Skáladal

Jón Svartsson

Jón Svartsson, Efri Miðvík

Þorsteinn Jónsson

Þorsteinn Jónsson, Skáladal

Jónatan Björnsson

Jónatan Björnsson, Skáladal

Þórður Jónsson

Þórður Jónsson, Skáladal

Karvel Halldórsson

Karvel Halldórsson, Skáladal

Bjarni Þorsteinsson

Bjarni Þorsteinsson, Hesteyri

Jóhannes Jóhannesson

Jóhannes Jóhannesson, Efri Miðvík

Þorsteinn Mikaelsson

Þorsteinn Mikaelsson, Efri Miðvík

Finnur Gestsson

Finnur Gestsson. Fæddur 30. júní 1823. Dáinn 8. september 1884. Foreldrar: Gestur Helgason bóndi í Vatnadal í Súgandafirði, síðar bóndi á Sæbóli, og kona hans Guðrún Finnbjörnsdóttir.

Kona: 13. okt. 1847, Borghildur, f. 9. maí 1825, d. 7. febr. 1896, Jónsdóttir, Jónssonar bónda í N. Miðvik.

Börn: Jóhanna Finnsdóttir, átti Brynjólf Guðmundsson i Kjaransvík. Þorbjörg Finnsdóttir, þriðja kona Ísleifs Ísleifssonar í Hlöðuvík. Hansína Finnsdóttir, átti Kristján Jóhannesson] í Rekavík bak Höfn. Sigríður Finnsdóttir, átti Guðjón Kristjánsson bónda í Tunga. Guðrún Finnsdóttir, giftist ekki, var ráðskona Jóhannesar Sakaríassonar í Rekavík bak Höfn. Gestur Finnsson, dáinn 1. júní 1914, ókvæntur.

Sonur Finns með Sigurlaugu Einarsdóttur, Rósmundur Finnsson, dó á Ísafirði 26. júní 1904.

Finnur Gestsson mun hafa verið húsmaður á Sæbóli 1849–1851. Bóndi í Skáladal 1851-1859. Var á Sæbóli 1860. Aftur í Skáladal 1884. Bóndi í Neðri Miðvík 1865-1870 eða lengur. Húsmaður i Hlöðuvík 1880. Hann dó í Stakkadal.

Guðlaugur Þórðarson

Guðlaugur Þórðarson, Skáladal

Kirstján Halldórsson

Kristján Halldórsson, Tungu

Engilbert Mikaelsson

Engilbert Mikaelsson. Fæddur 1804. Dáinn 17. júní 1877.

Foreldrar: Mikael Björnsson bóndi í Þverdal, síðar í Kjaransvík og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir.

Kona: 20. september 1835, Borghildur Guðmundsdóttir, ekkja Níelsar Tómassonar í Efri Miðvík. Barnlaus.

Engilbert var húsmaður á Stað í Aðalvík 1840. Bóndi á Glúmsstöðum 1845-1858. Húsmaður í Skáladal 1860. Var eftir það vinnumaður.


Hjálmar Jónsson

Hjálmar Jónsson, Skáladal

Árni Jónsson

Árni Jónsson, Skáladal

Árni Sigurðsson

Árni Sigurðsson, Skáladal

Guðleifur Ísleifsson

Guðleifur Ísleifsson, Sæbóli

Sigurður Jónatansson

Sigurður Jónatansson, Þverdal

Pétur Einarsson

Pétur Einarsson, Látrum

Guðmundur Jónsson

Guðmundur Jónsson, Skáladal

Elías Albertsson

Elías Albertsson, Skáladal

Markús Finnbjörnsson

Markús Finnbjörnsson, Sæbóli

Árni Þorkelsson

Árni Þorkelsson, Látrum