Jón Björnsson, Atlastöðum
Jump to navigation
Jump to search
Jón Björnsson. Fæddur um 1657. Dánarár ókunnugt.
Kona: Borghildur Jónsdóttir, fædd um 1654. Barnlaus.
Jón bjó á Atlastöðum 1703.
Jón og Sigurður bróðir hans selja sína hluti í jörðinni Þverdal í Aðalvík 18. maí 1703 og fengu þeir bræður mat, klæði og fleira „... eftir því sem þeir þurfa í þeirra aðþrengjandi neyð og bjargræðisleysi.“[1]
Móðir: Steinunn Grímsdóttir, fædd um 1619. Var á Atlastöðum 1703.
Bróðir Sigurðar Björnssonar og Bjarna Björnssonar. Systir þeirra gæti hafa verið Dýrfinna Björnsdóttir er var vinnukona Sigurðar skv. manntali 1703.