Jón Jónsson, Neðri Miðvík
Jón Jónsson. Fæddur 2. febrúar 1790. Dáinn 6. apríl 1865.
Foreldrar: Jón Guðlaugsson bóndi í Neðri Miðvík og kona hans Pórdís Brandsdóttir.
Kona: Helga, f. 1783, d. 29. júní 1862, Þorgilsdóttir, Jónssonar í Selárdal, Súgandafirði.
Börn: Katrín Jónsdóttir, átti fyrr Friðrik Hallsson í Neðri Miðvík, síðar Jóhannes Jóhannesson í Efri Miðvík. Guðfinna Jónsdóttir, seinni kona Bjarna Þorsteinssonar á Hesteyri. Friðrik Jónsson bóndi í Neðri Miðvík. Jóhannes Jónsson bóndi í Stakkadal, (tvíburar). Borghildur Jónsdóttir, átti Finn Gestsson frá Sæbóli. Árni Jónsson húsmaður i Neðri Miõvík.
Börn Jóns utan hjónabands: 1. Með Margréti Halldórsdóttur vinnukonu, Guðfinna Jónsdóttir, giftist ekki. 2. Með Marsibil Halldórsdóttur, Borgar Jónsson bóndi í Þverdal.
Jón Jónsson bjó í Neðri Miðvík frá því um 1814 til dánardags. Var vel metinn og komst vel af.